Innlent

Háhyrningar í selaveislu í Búðardal

Þau undur og stórmerki gerðust að háhyrningar eltu seli alveg uppundir Búðardal á föstudaginn var, og héldu þar mikla veislu með tilheyrandi fuglageri sem sveimaði fyrir ofan og beið eftir leifunum.

Háhyrningarnir voru þarna að drepa seli og varð sjórinn blóðlitaður umhverfis háhyrningana. Á vef Skessuhorns kemur fram að viðlíka hefur ekki gerst í manna minnum, að sögn heimamanna, þótt hvalir hafi stöku sinnum sést mun utar á Hvammsfirðinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×