Segist hafa ekið á sjötíu kílómetra hraða - sérfræðingur ósammála Erla Hlynsdóttir skrifar 25. júní 2012 12:08 Eyþór Darri var farþegi í bílnum og lést eftir áreksturinn. Ökumaðurinn hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi
Átján ára piltur sem hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi segist hafa verið á sjötíu kílómetra hraða þegar hann missti stjórn á bíl sínum, með þeim afleiðingum að Eyþór Darri Róbertsson lést. Sérfræðivitni segir ómögulegt að ökumaðurinn hafi verið á undir hundrað kílómetra hraða. Aðalmeðferð í málinu hófst í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur. Atvikið átti sér stað í ágúst á síðasta ári. Ökumaðurinn er ákærður fyrir að hafa ekið, próflaus, langt yfir leyfilegum hámarkshraða. Í ákæru segir að ætlaður hraði sé 119 kílómetrar á klukkustund, mögulegur lágmarkshraði sé 102 en mögulegur hámarkshraði 136 kílómetrar á klukkustund. Leyfilegur hámarkshraði þarna var 50. Pilturinn mótmælir þessu ákæruatriði og sagði fyrir dómi í morgun að hann hefði verið á sjötíu kílómetra hraða. Þeir hafi verið þrír í bílnum og á götuljósum við Hörpuna hafi þeir staðnæmst á rauðu ljósi við hliðina á samskonar bíl, og séð að þar voru þrjár stelpur. Auk ökumannsins kom farþegi bílsins fyrir dóminn í morgun, sem og allar stelpurnar. Fram kom að strákarnir höfðu verið að fíflast í þeim á ljósunum, hækkað í græjunum og veifað til þeirra. Þær veifuðu á móti og brostu. Öll neituðu þau að hafa verið í spyrnukeppni en ökumenn beggja bíla gáfu engu að síður í þegar græna ljósið kom. Þá fannst þeim ómögulegt að áætla hraða bílsins sem Eyþór Darri var í. Ein stúlkan taldi ökumanninn þó hafa ekið glannalega, mun hraðar en aðrir bílar á Geirsgötunni og sveigt á milli þeirra. Ökumaðurinn missti síðan stjórn á bílnum á mótum Geirsgötu og Tryggvagötu, lenti á steini sem vó um hálft tonn og kastaðist steinninn við höggið, bíllinn kastaðist þaðan á húsið og lentu framljós bílsins á húsinu í tæplega tveggja metra hæð. Meðal sérfræðivitna sem komu fyrir dóminn var prófessor í vélaverkfræði sem rannsakaði bílinn og vettvang slyssins. Hann sagði útilokað að hraðinn hefði verið undir 102 kílómetrum á klukkustund, og mun meiri líkur á að hann hafi verið á yfir 119 kílómetra hraða. Aðalmeðferð málsins stendur enn yfir.
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Sjá meira