Öryggisgæsla við dómstóla lengi verið til skoðunar BBI skrifar 25. júní 2012 20:23 Símon Sigvaldason, formaður dómstólaráðs.
Síðasta árið hafa öryggismál dómstóla verið í sérstakri skoðun hjá dómstólaráði. Þetta segir Símon Sigvaldason, formaður dómstólaráðs. Vinnunni er ekki lokið og því hefur enn ekki verið ákveðið að hrinda neinum tillögum í framkvæmd. Mikið hefur verið rætt um öryggismál dómstóla uppá síðkastið, ekki síst eftir að maður veittist að lögreglumönnum þar sem þeir voru að leiða Börk Birgisson, dæmdan ofbeldismann, til þinghalds. Maðurinn fékk ekki að rétta Berki úlpu en við það missti hann stjórn á sér og réðist á lögreglumennina. Í fréttum Ríkissjónvarpsins kallaði Björgvin G. Sigurðsson, formaður allherjarnefndar Alþingis, eftir því að öryggisgæsla dómstóla yrði efld. Símon Sigvaldason sagði í viðtali í útvarpsþættinum Reykjavík Síðdegis í dag að öryggismál við dómstóla væru almennt í sífelldri endurskoðun. Frá lokum síðasta árs hefði þó farið fram sérstök athugun á öryggismálum. Símon sagði þá athugun ennþá standa yfir og því yrði einhver bið á að tillögum yrði hrint í framkvæmd.Vopnaleitarhlið Meðal þeirra leiða sem til greina koma til að auka öryggismál dómstóla er að taka upp vopnaleitarhlið í dómshúsum. Símon er ekki sérlega spenntur fyrir því og bendir á að lengra yrði ekki gengið í öryggisgæslu. „Það er mikill fjöldi fólks sem heimsækir dómshúsin á degi hverjum og yfirleitt hefur það bara gengið snurðulaust fyrir sig. Vopnaleitarhlið myndu valda miklu óhagræði fyrir það fólk allt," segir Símon.Bakdyr Ein lausn gæti verið að flytja fanga inn í salin eftir öðrum leiðum en inn um aðalinnganginn. Símon segir að það hafi að einhverju leyti verið gert, til að mynda er farið með fanga bakdyramegin inn í Héraðsdóm Reykjavíkur. Hins vegar séu almennt ekki aðstæður til að flytja fanga inn um sér innganga í dómshúsum landsins.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Innlent Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Innlent Fleiri fréttir Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Sjá meira