Fór of hratt til að sjást á myndavél Erla Hlynsdóttir skrifar 25. júní 2012 19:03
Átján ára piltur sem ákærður er fyrir manndráp af gáleysi, neitaði ofsaakstri fyrir dómi í morgun. Sérfræðivitni bar að bíllinn hefði farið oft hratt til að mynd af honum næðist á eftirlitsmyndavél. Aðalmeðferð í málinu fór fram í dag, en það var í ágúst á síðasta ári sem Eyþór Darri Róbertsson lést, sautján ára gamall, eftir að bíll sem hann var farþegi í hafnaði á húsvegg. Eyþór höfuðkúpubrotnaði og var slökkt á öndunarvélum tveimur dögum eftir slysið. Ökumaður bílsins var einn besti vinur Eyþórs. Hann mætti fyrir dóm í fylgd bróður síns og föður. Aðstandendur Eyþórs Darra voru einnig mættir. Sérfræðivitni sem rannsakaði málið kom fyrir dóminn í dag sagðist meðal annars hafa farið yfir myndir úr eftirlitsmyndavél á svæðinu til að reyna að ákvarða hvaðann sem bíllinn var á. Eftirlitsmyndavélin er með 15 metra sjónsvið og tók 2 myndir á sekúntu. Engin mynd náðist af bílnum þegar hann fór framhjá sjónsviði vélarinnar. Samkvæmt því var hann á yfir hundrað kílómetra hraða á klukkustund, samkvæmt vitninu. Ítarlega hefur verið fjallað um aðalmeðferðina á Bylgunni og á Vísi í dag. Fram hefur komið að ökumaðurinn sagði fyrir dómi í morgun að hann hafi verið á sjötíu kílómetra hraða áður en slysið varð. Í ákæru segir að ætlaður hraði sé 119 kílómetrar á klukkustund, mögulegur lágmarkshraði sé 102 en mögulegur hámarkshraði 136 kílómetrar á klukkustund. Leyfilegur hámarkshraði var 50. Pilturinn sem ók sagði að þeir hafi verið þrír í bílnum og á götuljósum við Hörpuna hafi þeir staðnæmst á rauðu ljósi við hliðina á samskonar bíl, og séð að þar voru þrjár stelpur. Auk ökumannsins kom farþegi bílsins fyrir dóminn í morgun, sem og allar stelpurnar. Fram kom að strákarnir höfðu verið að fíflast í þeim á ljósunum, þeir hækkað í græjunum og veifað til þeirra. Þær veifuðu á móti og brostu. Öll neituðu þau að hafa verið í spyrnukeppni en ökumenn beggja bíla gáfu engu að síður í þegar græna ljósið kom. Þá fannst þeim ómögulegt að áætla hraða bílsins sem Eyþór Darri var í. Ein stúlkan taldi ökumanninn þó hafa ekið glannalega, mun hraðar en aðrir bílar á Geirsgötunni og sveigt á milli þeirra. Ökumaðurinn missti síðan stjórn á bílnum á mótum Geirsgötu og Tryggvagötu, lenti á steini sem vó um hálft tonn og kastaðist steinninn við höggið, bíllinn beinlínis flaug þaðan á húsið og lentu framljós bílsins á húsinu í tæplega tveggja metra hæð. Meðal sérfræðivitna sem komu fyrir dóminn var prófessor í vélaverkfræði kom að rannsókninni og sagði útilokað að bíllinn hefði verið á undir 100 kílómetra hraða. Lögreglumaður sem er einn af lykilvitnum í málinu komst ekki fyrir dóminn í dag. Því þurfti að fresta lokum aðalmeðferðar fram á föstudag.
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Minnst þrjátíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Fleiri fréttir Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Bein útsending: Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar Sjá meira