Innlent

Forsetafundur sem miðar að ungu fólki í kvöld

BBI skrifar
Af forsetafundinum í Ráðhúsinu í kvöld.
Af forsetafundinum í Ráðhúsinu í kvöld.
Forsetaefnin funda í kvöld með ungu fólki í Ráðhúsi Reykjavíkur. Fundurinn hófst klukkan 20:00 í kvöld og stendur enn yfir þegar þetta er skrifað.

Fundurinn hófst á framsöguræðum frambjóðenda en að þeim loknum tóku þeir við spurningum og tóku þátt í umræðum.

Áttavitinn stendur fyrir fundinum sem er opinn almenningi. Bein útsending frá fundinum er á vef Áttavitans. Hægt er að taka þátt í umræðunum í gegnum vef Áttavitans og á Facebook.

Áttavitinn er upplýsingagátt miðuð að ungu fólki á aldrinum 16-25 ára. Á síðunni má finna hagnýtan fróðleik sem viðkemur hinum ýmsu sviðum lífsins. Áttavitinn er í samstarfi við Tótal-ráðgjöf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×