Minnihlutinn skrópaði allur á fundi 11. september 2012 10:27 Guðmundur Ingi Gunnlaugsson.
Meirihluti hreppsnefndar Rangársþings ytra á Hellu er afar ósáttur við að allir aðalmenn minnihluta hafi forfallast á síðasta hreppsnefndarfundi. Samþykktu þeir bókun þess efnis að sveitastjóranum væri falið að fá skýringar á forföllunum frá oddvita minnihlutans. „Kostnaðarsamt er að kalla inn 3 varamenn og skekkir það verulega fjárhagsáætlun. Mikilvægt að aðalmenn kappkosti að sækja fasta boðaða fundi sveitarstjórnar og er vísað til 22. og 31. gr. sveitarstjórnarlaga í þessum efnum þar sem kveðið er á um mætingarskyldu og óviðráðanlegar ástæður fyrir fjarveru á sveitarstjórnarfundum".Vefurinn DFS hafði samband við Guðmund Inga Gunnlaugsson, oddvita sjálfstæðismanna, sem eru í minnihlutanum til að fá viðbrögð hans við bókuninni. „Þessi bókun er sérstök og við erum ósátt við hana. Mæting okkar á fundi hefur ekki verið síðri en hjá meirihlutanum enda er mætingarskylda.Í þetta sinn kom upp mjög óvenjuleg staða af hreinni tilviljun sem ótrúlegt er að gerist aftur. Við vorum bundin við atburði sem við réðum ekki tímasetningu á, en urðum að sætta okkur við. Aðstæður okkar voru óviðráðanlegar í þetta sinn. Þetta var skýrt fyrir oddvitanum og sveitarstjóranum," sagði Guðmundur Ingi.Meira má lesa um málið hér.
Mest lesið Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira