Biskupinn biður fórnarlömb afsökunar 28. júní 2011 11:07 Pétur Bürcher, biskup Kaþólsku kirkjunnar.
Biskup Kaþólsku kirkjunnar á Íslandi Pétur Bürcher biður alla þá sem kunna að hafa orðið fyrir kynferðislegum brotum af hálfu presta eða starfsmanna kirkjunnar, afsökunar og fyrirgefningar. Biskupinn segist með þessari yfirlýsingu vera að feta í fótspor Benedikts páfa sem gerði slíkt hið sama fyrir nokkru. Mikið hefur verið rætt og ritað um kynferðisbrot innan kirkjunnar síðustu daga og hefur biskupinn tekið þá ákvörðun að setja á fót óháða rannsóknarnefnd sem ætlað er að rannsaka þær ásakanir sem þar koma fram. „Sérstaklega verði kappkostað að upplýsa um viðbrögð og starfshætti Kaþólsku kirkjunnar í tilefni af slíkum ásökunum. Þá setji nefndin fram tillögur að úrbótum sé þess þörf í ljósi niðurstaðna," segir í yfirlýsingu frá biskup. Þá segir að Róbert R. Spanó lagaprófessor hafi verið kallaður til ráðgjafar í málinu en hann var í forsæti rannsóknarnefndar um sambærileg mál innan þjóðkirkjunnar. „Hefur þess verið farið á leit við Róbert að hann velji fulltrúa í rannsóknarnefndina og setji henni starfsreglur og markmið. Stefnt verði að því að ljúka undirbúningi að stofnun rannsóknarnefnd- arinnar sem fyrst þannig að hún geti hafið störf eigi síðar en 1. september nk. Hún skuli skila biskupi skýrslu um störf sín en helstu niðurstöður og tillögur rannsóknarnefndarinnar verði birtar opinberlega." Innanríkisráðherra verður tilkynnt um skipan nefndarinnar og honum kynntar starfsreglur hennar strax og þær liggja fyrir.
Mest lesið Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Erlent Skuldar ekkert Innlent Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Erlent Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Innlent Fleiri fréttir Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sjá meira