Skoðun

Virðing er áunnin en fæst ekki með nafnabreytingu

Lûðvík Lúðvíksson skrifar
Stofnfundur Verzlunarmannafélags Reykjavíkur(VR) var haldinn þann 27. janúar 1891. 120 ár eru langur tími í sögu félagasamtaka hér á landi og hefur VR lifað miklar breytingar sem hafa orðið í þjóðfélaginu frá stofnun þess. VR stofnaði m.a. Verzlunarskólann, Verzlunarbankann, Lífeyrissjóð verzlunarmanna og tímaritið Frjálsa Verslun svo eitthvað sé nefnt.

Árið 2006 tók stjórn VR uppá því að skipta um nafn á félaginu í “Virðing og réttlæti”. Ég hef bent mönnum á hversu óheppilegt nafnið “Virðing og réttlæti” sé en ábendingar mínar hafa ekki hlotið hljómgrunn. Virðing er ætíð áunnin en ekki fengin með nafnbreytingu. Ég, persónulega skráði nafnið “Verslunarmannafélag Reykjavíkur” og gaf VR nafnið tilbaka í 120 afmælisgjöf í síðustu viku. Þá sem undan eru gengnir skal ávallt virða og finnst mér lágmarks kurteisi að breyta nafninu aftur til fyrra horfs.

Báráttan um frjálsa fjölmiðlun, frjálsa verslun, lágar álögur og sem minnst ríkisafskipti er enn í fullu gildi. Nú eru kosningar til formanns VR í gangi og er undirritaður í framboði. Ég er íhaldsamur að eðlisfari og tel mig hafa það sem þarf til þess að veita stéttarfélaginu VR forystu. Eftirfarandi átta málefni ætla ég að berjast fyrir .

Átta lyklar að gæfusamri framtíð VR

1. 200.000 kr. lágmarkslaun

2. 250.000 kr. skattleysismörk

3. Afnán gjaldeyrishafta á þessu ári

v 4. Afnám verðtryggingar á tveimur árum

5. Þjóðfund VR í sumar “Leiðin til sátta”

6. Lækkun tryggingargjalds fyrirtækja til að skapa fleiri störf strax

7. Stofnun “Verslunarbanka Íslands” með fulltingi Lífeyrissjóðs verslunarmanna

8. Bjóða uppá lággjalda-stéttarfélags valkost innan VR, þar sem félagsmenn geta valið um hvort þeir vilji borga í orlofs og sjúkrasjóði.

Ég undirritaður, Lúðvík Lúðvíksson óska eftir stuðningi þínum kæri félagsmaður í baráttunni um formennskuna í VR.




Skoðun

Skoðun

Afruglari

Þórður Björn Sigurðsson skrifar

Sjá meira


×