Erlent

Brunnu inni í spilavíti í Mexíkó

Fjöldi vopnaðra manna réðst inn í spilavítið og kveikti í því. Aðstandendur biðu frétta fyrir utan spilavítið í gærdag. f
Fjöldi vopnaðra manna réðst inn í spilavítið og kveikti í því. Aðstandendur biðu frétta fyrir utan spilavítið í gærdag. f réttablaðið/ap
Að minnsta kosti 52 eru látnir í Norður-Mexíkó eftir að kveikt var í spilavíti í borginni Monterrey um miðjan dag á fimmtudag.

Vopnaðir menn réðust inn í spilavítið þar sem um 100 manns voru samankomnir, bæði starfsfólk og gestir. Samkvæmt sjónarvottum helltu þeir bensíni á gólf og sögðu fólki að koma sér út. Margir hræddir gestir og starfsmenn flúðu hins vegar lengra inn í bygginguna og urðu innlyksa þar. Mörg lík fundust meðal annars á salernum staðarins, þar sem fólk hafði læst sig inni til að forðast byssumennina. Fregnir hafa einnig hermt að neyðarútgangar hafi verið læstir.

Íkveikjan er talin tengjast fíkniefnastríðinu í Mexíkó, en ofbeldisverkum í Monterrey hefur farið fjölgandi undanfarin ár. Í síðasta mánuði voru tuttugu manns skotnir til bana á bar í borginni.

Felipe Calderon, forseti Mexíkó, lýsti í gær yfir þriggja daga þjóðarsorg vegna fjöldamorðanna. Hann sagði árásarmennina hryðjuverkamenn og árásin væri sú versta gegn óbreyttum borgurum sem sést hefði í langan tíma í landinu.- þeb



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×