Erlent

Fjölmiðlaveldi í uppnámi

David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, kallaði þjóðþing landsins saman á neyðarfund í gær til að ræða hleranamálið.
David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, kallaði þjóðþing landsins saman á neyðarfund í gær til að ræða hleranamálið. Mynd/AP
David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, kallaði þjóðþing landsins saman á neyðarfund í gær til að ræða hleranamálið, sem hefur ekki aðeins grafið undan trausti fólks á fjölmiðlaveldi Ruperts Murdoch, sem kannski var þó eitthvað takmarkað fyrir, heldur einnig til bresku lögreglunnar og forsætisráðherrans sjálfs.

Tíu manns hafa verið handteknir vegna málsins síðan í byrjun apríl, bæði vegna rannsóknar á símahlerunum blaðamanna fjölmiðlasamsteypunnar og vegna rannsóknar á því hvort breskir lögreglumenn hafi þegið fé frá fjölmiðlum Murdochs í skiptum fyrir upplýsingar.

Tveir æðstu yfirmenn bresku lögreglunnar, þeir Paul Stephenson lögreglustjóri og John Yates, yfirmaður hryðjuverkadeildar lögreglunnar, hafa sagt af sér í tengslum við málið. Þeir báðir hafa verið ásakaðir, ásamt tveimur öðrum yfirmönnum lögreglunnar, um brot í tengslum við hleranir blaðamanna News of the World.

Stephenson er meðal annars gagnrýndur fyrir að hafa ráðið Neil Wallis, fyrrverandi ritstjóra News of the World, til ráðgjafarstarfa hjá lögreglunni og Yates fyrir að hafa útvegað dóttur Wallis starf.

Hlutabréf í News Corp, fjölmiðlasamsteypu Ruperts Murdoch hafa fallið töluvert í verði vegna málsins og ítök hans í stjórnmálaheiminum í Bretlandi hafa dvínað mjög, að minnsta kosti tímabundið.

Rebekah Brooks, sem lengi hefur verið hægri hönd Murdochs, var handtekin á sunnudag en látin laus þá um kvöldið gegn tryggingu. Hún sagði af sér fyrir helgi sem framkvæmdastjóri News International, undirfyrirtækis News Corp, sem gefur meðal annars út blaðið News of the World.

Hún á að mæta í dag ásamt feðgunum James og Rupert Murdoch fyrir breska þingnefnd þar sem til stendur að fara ofan í saumana á málinu, sem hefur haft víðtæk áhrif á bresk stjórnmál ekki síður en fjölmiðlaheiminn.

Meðal annars sætir David Cameron vaxandi þrýstingi fyrir að hafa ráðið annan fyrrverandi ritstjóra sama blaðs, Andy Coulson, til að vera upplýsingafulltrúi hans.

Ed Miliband, leiðtogi stjórnarandstöðunnar, segir Cameron þurfa að svara erfiðum spurningum um tengsl sín við Murdoch, Brooks og Coulson.

„Sem stendur virðist hann ófær um að veita þá stjórnarforystu sem landið þarfnast," segir Miliband, sem er leiðtogi Verkamannaflokksins.

gudsteinn@frettabladid.is


Tengdar fréttir

FBI rannsakar Murdoch og hleranir í Bandaríkjunum

Enn þrengir að Robert Murdoch og fjölmiðlaveldi hans því bandaríska alríkislögreglan rannsakar nú hvort fjölmiðlar í hans eigu hafi brotið gegn fórnarlömbum hryðjuverkaárásanna 11. september 2001.

Fálmkennd viðbrögð Camerons vegna hlerunarhneykslisins

Forsætisráðherra Bretlands er undir miklum þrýstingi eftir að tveir hæst settu lögregluforingjar landsins sögðu af sér vegna hlerunarhneykslisins þar í landi. Breska þingið mun fresta því að fara í sumarfrí.

Síðasta blað News of the World - „Takk fyrir og bless“

Breska vikublaðið News of the World kemur út í síðasta skipti á morgun en ákveðið hefur verið að leggja blaðið niður eftir að fréttir bárust að því að menn á vegum blaðsins hefðu hlerað síma einstaklinga.

Opinber afsökunarbeiðni Rupert Murdoch

Fjölmiðlamógúllinn Rupert Murdoch hefur gefið út opinbera afsökunarbeiðni þar sem hann biðst velvirðingar á því hvernig vikuritið News of the World bar sig að við fréttaskrif, en Murdoch tók þá ákvörðun fyrir stuttu að leggja útgáfu blaðsins niður. Vikublaðið breska kom út í síðasta skipti mánudaginn 11. júlí, eftir að hafa verið starfandi í 168 ár frá stofnun þess árið 1843.

Brooks handtekin vegna símhleranamálsins

Rebekah Brooks, fyrrum stjórnandi hjá News International í Bretlandi, hefur verið handtekin í tengslum við símhleranamálin sem hafa skekið breskt samfélag að undanförnu. Brooks var handtekin eftir skýrslutökur á lögreglustöð í Lundúnum og er hún í gæsluvarðhaldi. Fram kemur á fréttavef BBC að þetta er tíunda handtakan í tengslum við ásakanir á hendur dagblaðinu News of the World um símhleranir.

Verðir konungsfjölskyldunnar seldu News of the World upplýsingar

Að minnsta kosti tveir verðir sem höfðu það að starfi að vernda konungsfjölskylduna eru taldir hafa selt götublaðinu News of the World tengiliðabók sem innihélt allar upplýsingar um það hvernig mætti ná í hvern einasta meðlim konungsfjölskyldunnar, auk vina þeirra, starfsfélaga og starfsmanna.

Útgáfu News of the World hætt

Útgáfu vikublaðsins News of the World verður hætt. Þetta hefur Sky fréttastöðin eftir James Murdoch, syni Ruperts Murdoc eiganda blaðsins. Síðasta tölublað kemur út á sunnudaginn.

Ford hættir að auglýsa í „News of the World“

Bílaframleiðandinn Ford hefur tekið þá ákvörðun að hætta að auglýsa í breska dagblaðinu News of the World eftir að upp komst um víðtækar hleranir sem blaðið beitti í mörg ár. Ford er fyrsta stórfyrirtækið sem tekur þessa ákvörðun en talið er víst að fleiri fylgi í kjölfarið.

Rauða nornin látin laus

Rebekha Brooks sem breskir fjölmiðlar eru farnir að kalla Rauðu nornina hefur verið látin laus gegn tryggingu. Hún var handtekin í gær vegna gruns um að hafa átt aðild að símhlerunum og tölvuhakki.

Blaðahneyksli í Bretlandi: Andy Coulson handtekinn

Andy Coulson, fyrrverandi ritstjóri News of the World og fyrrverandi blaðafulltrúi forsætisráðherra Bretlands er í haldi lögreglu sem rannsakar nú ásakanir á hendur ritstjórn blaðsins um að símar þúsunda einstaklinga hafi verið hleraðir á nokkurra ára tímabili.

Fjölmiðlakóngur biðst afsökunar

Helstu blöð Bretlands birta í dag heilsíðuauglýsingar frá Rupert Murdoch vegna þess sem hann kallar alvarlegar misgjörðir News of the World. Í auglýsingunni segir „Okkur þykir fyrir þeim alvarlegu misgjörðum sem átt hafa sér stað.". Rebekah Brooks, fyrrverandi ritstjóri News of the World og Les Hinton, stjórnandi hjá útgáfufyrirtækinu News Corporation, sögðu upp störfum í gær vegna símahlerunarhneykslis sem skekið hefur Bretland að undanförnu.

Telja að David Cameron hafi sýnt dómgreindarskort

Leiðarar margra breskra blaða í morgun fjalla um afsögn lögreglustjóra Lundúna og segja afsögnina varpa fram spurningu um dómgreindarskort hjá David Cameron forsætisráðherra Bretlands.

Hitnar undir David Cameron

John Yates aðstoðarlögreglustjóri í Lundúnum hefur sagt af sér vegna hlerunarhneykslisins sem nú skekur Bretland. Yfirmaður hans Sir Paul Stephenson, lögreglustjóri sagði af sér í gær af sömu ástæðu.

Hugh Grant beðinn að bera vitni í símahleranamáli

Leikarinn Hugh Grant segir að lögreglan hafi beðið sig að bera vitni í rannsókn sem nú stendur yfir á æsifréttablaðinu News of the World, sem sakað er um að hafa hlerað símtöl fólks, meðal annars ungrar stúlku sem var myrt árið 2002.

Murdoch kallaður fyrir breska þingnefnd

Bresk þingnefnd sem er að rannsaka hlerunarhneyksli blaðsins News of The World hefur beðið fjölmiðlabaróninn Rupert Murdoc um að mæta til þess að svara spurningum. Þingmennirnir vilja einnig heyra í syni hans James og fyrrverandi ritstjóra Rebekku Brooks.

Murdoch forstjóri hrökklast úr starfi

Rebekha Brooks forstjóri fjölmiðlaveldis Ruberts Murdoch í Bretlandi hefur sagt af sér. Hún er fyrrverandi ritstjóri News of The World, blaðsins sem fyrst varð uppvíst að því að hlera síma þúsunda þekktra Breta, þar á meðal konungsfjölskyldunnar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×