Verðir konungsfjölskyldunnar seldu News of the World upplýsingar 11. júlí 2011 16:22 Elísabet II, Englandsdrottning. Mynd/AP
Að minnsta kosti tveir verðir sem höfðu það að starfi að vernda konungsfjölskylduna eru taldir hafa selt götublaðinu News of the World tengiliðabók sem innihélt allar upplýsingar um það hvernig mætti ná í hvern einasta meðlim konungsfjölskyldunnar, auk vina þeirra, starfsfélaga og starfsmanna. Frá þessu er greint í vefriti The Guardian og kemur þar einnig fram að samkvæmt heimildum blaðsins hafi verðirnir fengið 1.000 pund fyrir bókina eða um 187 þúsund íslenskar krónur. Talið er að þær nákvæmu upplýsingar sem finna mátti í bókinni hafi gert News of the World kleift að hlera síma þeirra konungsbornu. Í heildina er talið að News of the World hafi borgað lögreglumönnum tæpar 25 milljónir íslenskra króna fyrir upplýsingar af ýmsu tagi. Mikið fjaðrafok hefur verið í fjölmiðlaheiminum frá því upp komst að blaðamenn sem störfuðu á News of the World hefðu stundað símahleranir, en fjölmiðlakonungurinn Rupert Murdoc tók þá ákvörðun fyrir stuttu að leggja útgáfu blaðsins niður. Vikublaðið breska kom út í síðasta skipti í gær, eftir að hafa verið starfandi í 168 ár frá stofnun þess árið 1843.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Fleiri fréttir Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Sjá meira