Leikskólakennarar eru mikilvægir Anna Svanhildur Daníelsdóttir skrifar 7. júlí 2011 10:00 Ég var 6 ára þegar ég ákvað að vera fóstra, eins og það var kallað þá. Það komst ekkert annað að hjá mér heldur en að hugsa um börn og vissi ég að þetta vildi ég vinna við þegar ég yrði stór. Eftir framhaldsskólann árið 1994 fór ég í Fósturskóla Íslands án þess að hafa nokkurn tíma unnið á leikskóla. Námið var skemmtilegt og krefjandi og útskrifaðist ég árið 1997 og var í síðasta hópnum fyrir B.Ed. en útskrifaðist samt sem leikskólakennari. Strax að lokinni útskrift byrjaði ég að vinna í leikskóla í Hafnarfirði og hef unnið sem leikskólakennari í tveimur leikskólum í Hafnarfirði. Árið 2009 hafði ég hug á að fara í framhaldsnám í Kennaraháskólanum en þá kom það upp að þar sem ég útskrifaðist árið 1997 hafði ég ekki B.Ed gráðu og þurfti ég að bæta henni við mig áður en ég gat sótt um framhaldsnám. Ákvað ég því að fara í fjarnám með vinnu. Ég útskrifaðist með B.Ed gráðu vorið 2010 og sama haust hóf ég fjarnám aftur með vinnu en nú á meistarastigi, í náms- og kennslufræði með áherslu á menntunar- og kennslufræði yngri barna og útskrifaðist með viðbótardiplómu í því núna í júní. Þar með hef ég stundað nám í 5 ár og gerði ég þetta til að gera mig að betri leikskólakennara sem skilar sér í enn betri vinnu með börnunum. Ekki var þetta gert til þess að hækka laun mín þar sem að þetta skilar einungis hækkun upp á tvo launaflokka, sem gerir um 7.700 króna hækkun á mánaðarlaunum mínum. Dagur í lífi leikskólakennara er fjölbreyttur og skemmtilegur en einnig mjög krefjandi. Í 2.gr. Aðalnámskrá leikskóla (2011, bls. 21) kemur fram að meginmarkmið uppeldis og kennslu í leikskóla eru:Að fylgjast með og efla alhliða þroska barna í náinni samvinnu við foreldra,Að veita skipulega málörvun og stuðla að eðlilegri færni í íslensku,Að hlúa að börnum andlega, vitsmunalega og líkamlega í samræmi við þarfir hvers og eins svo að börnin fái notið bernsku sinnar,Að stuðla að víðsýni barna og efla siðferðisvitund þeirra,Að leggja grundvöll að því að börn verði sjálfstæðir, virkir og ábyrgir þátttakendur í lýðræðisþjóðfélagi sem er í örri og sífelldri þróun,Að rækta hæfileika barna til tjáningar og sköpunar í þeim tilgangi m.a. að styrkja sjálfsmynd þeirra, heilbrigðisvitund, öryggi og hæfni til mannlegra samskipta. Á grundvelli markmiða laga um leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla hafa verið settir fram grunnþættir menntunar. Að þessu er unnið alla daga í leikskóla en þessi markmið sýna mjög skýrt hvað skiptir miklu máli að leikskólakennarar séu vel menntaðir og að þeir sem vinna með börnunum okkar hafi áhuga á og séu vel til þess fallnir að undirbúa framtíð landsins okkar, sem er auðvitað börnin okkar. Nú eru kjaraviðræður í fullum gangi hjá leikskólakennurum og er von mín sú að við fáum laun við hæfi, annars er hætta á að stéttin deyi út. Leikskólakennarar eru ekki vanir að láta mikið í sér heyra þegar kemur að kjaramálum eins og hægt er að skoða í sögu félagsins og má segja að umburðarlyndi okkar sé með ólíkindum þegar kemur að þeim málum. En hingað og ekki lengra, við getum ekki lengur látið sem ekkert sé. Í byrjun júní var kosning innan félagsins um verkfallsboðun félagsins og var hún samþykkt af miklum meirihluta félagsmanna. Mér er misboðið og lýsi því yfir að við getum ekki setið lengur og beðið. Við vitum um áhrif þess að fara í verkfall en einhvern tíma er komið nóg og að mínu mati er sá tími núna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ég er líka að taka fullan þátt í samfélaginu! Alina Vilhjálmsdóttir Skoðun Pólitísk forgangsröðun í þágu allra Kópavogsbúa Sigurður Kári Harðarsson Skoðun Blá útivist – sóknarfæri lýðheilsu Jón Pálsson Skoðun Kerfið sem á að vernda börnin en bregst þeim Ingibjörg Einarsdóttir Skoðun Börn í Laugardal fá ekki heitan mat í skólanum Jakob Jakobsson Skoðun Er kennari ógn fyrir að trúa börnum sem segja frá ofbeldi? Ása Lind Finnbogadóttir Skoðun Hleðslustöðin Árneshreppur Þorgerður Lilja Björnsdóttir Skoðun Takk hjúkrunarfræðingar! Siv Friðleifsdóttir Skoðun Ég býð mig fram til að taka Borgarlínuna fyrir þig Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Að byggja bæ – eða samfélag? Herdís Anna Ingimarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Blá útivist – sóknarfæri lýðheilsu Jón Pálsson skrifar Skoðun Pólitísk forgangsröðun í þágu allra Kópavogsbúa Sigurður Kári Harðarsson skrifar Skoðun Kerfið sem á að vernda börnin en bregst þeim Ingibjörg Einarsdóttir skrifar Skoðun Ég er líka að taka fullan þátt í samfélaginu! Alina Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Er kennari ógn fyrir að trúa börnum sem segja frá ofbeldi? Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Tveir handteknir vegna stórfelldrar líkamsárásar – One-way ticket í sænsku leiðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Breytt vinnubrögð í mótun geðheilbrigðisþjónustunnar – draumsýn eða veruleiki? Elín Ebba Ásmundsdóttir skrifar Skoðun Að byggja bæ – eða samfélag? Herdís Anna Ingimarsdóttir skrifar Skoðun Hinn þríklofni Jóhann Páll Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Reykjavík er án móttökudeilda, og afleiðingarnar eru komnar í ljós Sóldís Birta Reynisdóttir skrifar Skoðun Áskoranir Ísafjarðarbæjar í húsnæðismálum Svanfríður Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Fjármagn í þágu fjölskyldna Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Allir eru jafnir en enginn fær að blómstra Bessí Þóra Jónsdóttir skrifar Skoðun Hólastóllinn Hjalti Pálsson skrifar Skoðun 8. sætið Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Tölum hátt og stolt um frið, segjum nei við hervæðingunni Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Íþróttamannvirki til sölu fyrir atkvæði Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Börnin fyrst – fjármögnun til framtíðar Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Guðmundur Fylkisson skrifar Skoðun Kaupleiga er bjargráð – ekki brask Hallfríður G. Hólmgrímsdóttir skrifar Skoðun Tölum hátt og stolt um frið, segjum nei við hervæðingin Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun „Snákaolía“ Miðflokksins Thelma B. Árnadóttir skrifar Skoðun Þegar sálfélagsleg áhætta verður rekstraráhætta Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun E-listinn er ekki málið áfram í Reykjavík – Miðflokkurinn er það Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Nýsköpun þrífst ekki í óvissu Ingunn Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hleðslustöðin Árneshreppur Þorgerður Lilja Björnsdóttir skrifar Skoðun Börn í Laugardal fá ekki heitan mat í skólanum Jakob Jakobsson skrifar Skoðun Akranes á að vera eftirsóknarverðasti bærinn: Fersk nálgun með Viðreisn Jón Guðni Guðmundsson skrifar Skoðun Kópavogur í sókn: Að þora meðan aðrir sitja hjá Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Loftslagsmál sem lýðræðislegt verkefni Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hamingjan sem þjóðarverkefni: Leirársveit og hin nýja íslenska gullöld Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Tveir handteknir vegna stórfelldrar líkamsárásar – One-way ticket í sænsku leiðina Davíð Bergmann skrifar
Skoðun Breytt vinnubrögð í mótun geðheilbrigðisþjónustunnar – draumsýn eða veruleiki? Elín Ebba Ásmundsdóttir skrifar
Skoðun Reykjavík er án móttökudeilda, og afleiðingarnar eru komnar í ljós Sóldís Birta Reynisdóttir skrifar
Skoðun Börnin fyrst – fjármögnun til framtíðar Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Guðmundur Fylkisson skrifar
Skoðun E-listinn er ekki málið áfram í Reykjavík – Miðflokkurinn er það Helgi Áss Grétarsson skrifar
Skoðun Akranes á að vera eftirsóknarverðasti bærinn: Fersk nálgun með Viðreisn Jón Guðni Guðmundsson skrifar
Skoðun Hamingjan sem þjóðarverkefni: Leirársveit og hin nýja íslenska gullöld Sigurður Sigurðsson skrifar