Karl gerði mistök í máli Guðrúnar Ebbu 10. júní 2011 11:17 Karl Sigurbjörnsson gerði mistök samkvæmt rannsóknarnefndinni.
Rannsóknarnefnd Kirkjuþings kemst meðal annars að þeirri niðurstöðu að Karl Sigurbjörnsson biskup hafi orðið á mistök sem forseti kirkjuráðs varðandi úrlausn mála Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur varðandi erindi sem hún sendi í mars 2009 vegna meintra kynferðisbrota föður síns, Ólafs Skúlasonar. Það er hinsvegar niðurstaða rannsóknarnefndarinnar að ekki séu forsendur til að fullyrða að Karl Sigurbjörnsson, aðrir starfsmenn biskupsstofu eða kirkjuráðsmenn, hafi með framgöngu sinni gert tilraun til að þagga niður í Guðrúnu Ebbu með því að leitast við að koma í veg fyrir að hún fengi tækifæri til að koma sögu sinni á framfæri á vettvangi kirkjuráðs. Á hinn bóginn er það niðurstaða rannsóknarnefndarinnar að ýmis mistök hafi verið gerð við meðferð erindis hennar. Í fyrsta lagi hafi verið gerð mistök við móttöku erindis Guðrúnar Ebbu í mars 2009 á biskupsstofu, enda hafi það ekki verið skráð með formlegum og venjubundnum hætti. Í öðru lagi hafi þau mistök verið gerð að erindi Guðrúnar Ebbu hafi aldrei verið svarað formlega af hálfu kirkjuráðs eins og eðlilegt hefði verið. Í þriðja lagi er það niðurstaða rannsóknarnefndarinnar að Karl Sigurbjörnsson hafi ekki fært fram fullnægjandi réttlætingarástæður fyrir því að úr málum Sigrúnar Pálínu Ingvarsdóttur og Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur skyldi leyst með ólíkum hætti á vettvangi kirkjuráðs. Svo segir í skýrslunni að ef á annað borð var talið rétt og mögulegt að fara þá leið að gefa Sigrúnu Pálínu kost á áheyrn ráðsins verði að telja það ámælisverð vinnubrögð að leysa ekki úr máli Guðrúnar Ebbu þegar með sambærilegum hætti og til viðbótar að láta hana bíða í rúmt ár eftir frekari viðbrögðum við erindi hennar og þá ekki fyrr en hún hafði í annað skipti ítrekað ósk sína um áheyrn kirkjuráðs. Það er því ótvírætt niðurstaða rannsóknarnefndarinnar að Karl Sigurbjörnsson hafi við meðferð erindisins borið sem biskup og forseti kirkjuráðs ábyrgð á þessum mistökum.
Mest lesið Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka Innlent Ekið á hjólreiðamann Innlent Salómonsdómur í deilu um pinnahælaför í parketi Innlent Ekkert vopnahlé heldur umfangsmiklar árásir í Rússlandi Erlent Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Erlent Babb í bátinn enn eina ferðina Innlent „Ég elska þennan flugvöll“ Innlent Veðurfræðingur spáir fínasta sumri Innlent „Og nei, Snorri Másson, þú ert ekki fórnarlambið hér“ Innlent Versti mögulegi tíminn fyrir netárás Innlent Fleiri fréttir Borgarstjóri fer í saumana á kortafærslunum Fundu snyrtistofuna við húsleit í kjölfar umferðareftirlits Tölvuþrjótar hrella háskólanemendur og Reform rúllar upp kosningum á Englandi Tilbúinn í umræður um hlaðvörpin en afdráttarlaus varðandi Rás 2 Versti mögulegi tíminn fyrir netárás Veðurfræðingur spáir fínasta sumri Leikskólagjöld fyrir fulla vistun hækkað um allt að 85 prósent Ekið á hjólreiðamann Sigríður hjólar í Hönnu Katrínu: Eini ráðherrann „sem vill hvorki sjá né heyra af atvinnulífinu“ Salómonsdómur í deilu um pinnahælaför í parketi „Þverhausar“ komi í veg fyrir umræðu um sameiningu fyrir vestan Fjölga stæðum fyrir deilibíla og rafhlaupahjól í Reykjavík Einn öskrandi og til ama og annar sofandi á gatnamótum Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka „Ég elska þennan flugvöll“ „Erfitt að sjá að þetta verði fyrstu kostir, kannski ef að allt fer í hnút“ Svona gekk að flytja vindmyllurnar Babb í bátinn enn eina ferðina „Við segjum stundum: Víkingur fékk okkur í afmælisgjöf“ Tveggja bíla árekstur á Reykjavíkurvegi „Við erum bara að mótmæla“ Fleiri vilja sjá Sönnu sem borgarstjóra en Björgu Milljónum í reiðufé stolið Milljóna þjófnaður úr spilakössum, flóknar meirihlutaviðræður og lóð gróðrarstöðvar til Víkings Bein útsending: Flugvöllurinn, flugið og flokkarnir „Og nei, Snorri Másson, þú ert ekki fórnarlambið hér“ Kylfingar í Mosó geta farið að dusta rykið af golfdóti sínu Hnökrar í innleiðingu á gjaldfrjálsum strætó fyrir reykvísk ungmenni Sjúkra- og endurhæfingargreiðslur hækkuðu um 37 prósent milli ára Tryggja rekstur Hjálparsímans til tveggja ára Sjá meira