Roskni ökuþórinn er alræmdur á götunum 8. september 2011 07:30 Ótrúlegt þykir að maðurinn hafi ekki slasast meira en raun ber vitni. Af upptöku sem náðist á myndavél leigubíls má ráða að mennirnir hafi ekið á vel yfir 100 kílómetra hraða.Fréttablaðið/valli
Tæplega 67 ára maður sem slapp ótrúlega vel úr alvarlegu slysi eftir kappakstur á Hafnarfjarðarvegi á mánudag er umtalaður fyrir hegðun sína í umferðinni. Þeir sem fylgst hafa með aðförum hans eru ekki hissa á að hann hafi nánast orðið sér að aldurtila með glannaskap. Þetta má lesa úr spjalli áhugamanna um kraftmikla bíla á vef samtakanna Live2Cruize, þar sem fólk ræðir slysið undir dulnefni. „[Miðað við] það sem ég hef séð af þessum gamla þá kemur þetta slys mér ekki mikið á óvart,“ skrifar einn og tveir taka undir. Maðurinn ók 340 hestafla svörtum Dodge Charger-bíl sem gjöreyðilagðist í slysinu. Allt bendir til þess að hann hafi verið í kappakstri við ókunnugan, hálfþrítugan mann. Maðurinn slapp með minniháttar meiðsli úr slysinu, sem sérfróðir menn segja með ólíkindum. Smáhundur hans drapst. Í bílnum var göngugrind sem maðurinn styðst við. Í slysaskrá Umferðarstofu má sjá að bíllinn skemmdist síðast mikið í janúar þegar maðurinn ók aftan á sendibifreið frá N1 á Reykjanesbraut. Spjallverjar samtakanna Live2Cruize eru misánægðir með þann roskna. „Þessi gaur reyndi að keyra í hliðina á mér eftir að hann tapaði fyrir mér í spyrnu eitt sinn og svo þegar að við stoppuðum á næstu ljósum þá rétti hann mér bara puttann,“ segir einn. Annar er ekki jafn hneykslaður: „Fannst ekkert smá fyndið þegar að ég var á Sæbrautinni á 535i [BMW-bifreið] og alltíeinu drukknaði allt í reyk..... þá var gamli skarfurinn að mökka brjál (vorum stopp á ljósum) og reyna að fiska spyrnu.“ Enn annar segir sögu af því þegar hann var að vinna á hjólbarðaverkstæði og fékk manninn í heimsókn að kaupa felgur. Hann hafi gortað af árangri sínum í spyrnukeppnum og síðan spænt og spólað um bílastæðið við brottförina að viðstöddu margmenni. Fréttablaðið hefur ítrekað reynt að ná tali af manninum síðan slysið varð en án árangurs. Tekin voru sýni úr manninum, sem og ökumanni hins bílsins, eftir áreksturinn á mánudag til að kanna hvort þeir hefðu verið allsgáðir. Þær niðurstöður liggja ekki fyrir. Ekki er útilokað að lögregla muni fara fram á sérfræðimat á því hvort maðurinn sé hæfur til að stjórna ökutæki.stigur@frettabladid.is
Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Fleiri fréttir Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Sjá meira