Reisir vindmyllur í rannsóknarskyni 18. nóvember 2011 04:00 Ef áætlanir Landsvirkjunar ganga eftir mun vindmyllugarður rísa á Suðurlandi. nordicphotos/afp
Landsvirkjun hyggst reisa eina eða tvær 45 metra háar vindmyllur við Búrfellsvirkjun á komandi ári í rannsóknarskyni. Gangi það eftir mun í framhaldinu rísa þar vindmyllugarður líkt og í nágrannalöndunum og gæti vindorka orðið stór hluti af orkuframleiðslu Íslendinga, að mati Óla Grétars Blöndal Sveinssonar, framkvæmdastjóra þróunarsviðs hjá Landsvirkjun. Óli Grétar sagði á haustfundi Landsvirkjunar í vikunni að tilraunaverkefni með virkjun vindsins á Suðurlandsundirlendinu hefði gengið vel, en 60 metra hátt mastur var reist við Búrfellsvirkjun fyrr á þessu ári til að mæla vindorku á svæðinu. „Vindorka er sá óhefðbundni orkugjafi sem hefur náð bestri fótfestu og er í mestum vexti í nágrannalöndum okkar,“ sagði Óli og bætti við að mikil tækifæri lægju í nýtingu vindorku hér á landi. „Helstu kostirnir eru að við búum á vindasömu landi og aðstæður eru betri en á flestum öðrum stöðum,“ sagði hann. „Nýtingartími hér er tvöfalt betri en heimsmeðaltal, mikið landrými og aðstæður svipaðar og á hafi úti.“ Hægt er að taka niður bæði það mastur sem nú þegar hefur verið reist við Búrfellsvirkjun og þær vindmyllur sem stendur til að reisa, þannig að um afturkræfaraðgerðir er að ræða. - sv
Mest lesið „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Innlent Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Innlent Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Innlent Fleiri fréttir Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám Sjá meira