Krefjast þess að strokuþrællinn fái að dvelja á Íslandi 26. júlí 2011 09:36 Mouhammde Lo strauk af Fit hostel í Reykjanesbæ eftir að ákveðið var að vísa honum úr landi
Boðað hefur verið til mótmæla fyrir utan stjórnarráðið í dag þar sem þess verður krafist að máritaníski strokuþrællinn Mouhammde Lo verði beðinn afsökunar á „...aðför lögreglunnar gegn lögvörðum mannréttindum hans og leyft að dvelja á Íslandi meðan mál hans er tekið fyrir í ráðuneytinu," eins og það er orðað á vef samtakanna No Borders sem berjast fyrir réttindum flóttafólks. Mouhammde er 22 ára gamall en hann flúði hingað til lands frá Noregi þar sem hann hafði sótt um hæli en ekki fengið svar. Útlendingastofnun sem og íslenska innanríkisráðuneytið tóku á dögunum þá ákvörðun að vísa mannium úr landi og aftur til Noregs. Í tilkynningu sem No Borders sendu þá frá sér kom fram að ef maðurinn fengi ekki hæli í Noregi yrði hann sendur í þrældóm í heimalandi sínu. Er þess því krafist að hann fái hæli hér. Eftir að ákveðið var að vísa Mohammde úr landi flúði hann af Fit hostel þar sem hann dvaldi og hefur síðan farið huldu höfði. Búið er að kæra ákvörðun Útlendingastofnunar og ráðuneytisins. Mótmælin við stjórnarráðið hefjast klukkan tólf á hádegi. Á vef No Borders segir: „Við leggjum áherslu á að brottvísun hans brýtur gegn jafnræðisreglunni (11. gr. ssl.), þar sem flóttamenn hafa að undanförnu fengið að bíða á landinu eftir úrskurði ráðuneytisins eftir að málum þeirra er áfrýjað. Sú hefð komst á í tíð Rögnu Árnadóttur í ráðherrastóli og var mærð sem mikilvægur áfangasigur af mannréttindasamtökum og samráðherrum hennar sem sumir hverjir sitja enn í ríkisstjórn. Nú kveður hins vegar við annan tón og áfangasigurinn er hafður að engu. Því lítum við á tilraun stjórnvalda sem alvarlega aðför að rétti flóttamanna til sanngjarnar málsmeðferðar."
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Minnst tíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Fleiri fréttir Bein útsending: Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Sjá meira