Lífeyrissjóðsstjóri átti rétt á að fá gögn 12. apríl 2011 05:00 Mál Fjármálaeftirlitsins og Ingólfs Guðmundssonar ætti að vera endurskoðað, að mati umboðsmanns Alþingis. fréttablaðið/gva
Synjun Fjármálaeftirlitsins (FME) um afhendingu umbeðinna gagna til Ingólfs Guðmundssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Lífeyrissjóðs verkfræðinga, skorti lagastoð að mati umboðsmanns Alþingis. Ingólfur fór fram á að fá gögn í stjórnsýslumáli er laut að hæfi hans til þess að gegna stöðu framkvæmdastjóra Lífeyrissjóðs verkfræðinga, en var synjað. Umboðsmaður mælist til þess að mál Ingólfs verði tekið upp að nýju innan FME. Ingólfur var ráðinn framkvæmdastjóri sjóðsins í febrúar 2010. FME sendi sjóðnum bréf í maí þar sem gerðar voru athugasemdir við ráðningu Ingólfs. Í bréfinu stóð að verið væri að skoða hæfi framkvæmdastjórans til þess að gegna stöðunni, vegna starfa hans sem stjórnarformanns Íslenska lífeyrissjóðsins. Niðurstaða FME var sú að Ingólfur var ekki hæfur og í framhaldi af því lét hann af störfum. „Ég var mjög ósáttur við afgreiðslu Fjármálaeftirlitsins og höfðaði mál gegn því í desember. Ég tel að þeir hafi gróflega misnotað valdheimildir sínar," segir Ingólfur. „Ég tel að [niðurstaða umboðsmanns] sýni vinnubrögðin í málinu í hnotskurn." Fjallað verður um mál Ingólfs innan FME 20. apríl næstkomandi. - sv
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Svínum sleppt út í Saltvík Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Svínum sleppt út í Saltvík „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Sjá meira