Páll Magnússon fundaði með Steingrími 21. október 2011 10:56 Ráðning Páls Magnússonar, hefur verið mjög umdeild.
Páll Magnússon, nýráðinn forstjóri Bankasýslu ríksins, fundaði með Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra, þann 10. október síðastliðinn, þar sem ráðherrann kom sjónarmiðum sínum á framfæri. Fundurinn var haldinn fyrir milligöngu Þorsteins Þorsteinssonar, stjórnarformanns Bankasýslu ríkisins. Þremur dögum eftir fundinn skilaði stjórn Bankasýslunnar rökstuðningi fyrir ráðningu Páls, sem hefur verið harðlega gagnrýnd, meðal annars af öðrum umsækjendum. Þorsteinn segir í samtali við Vísi að stjórn Bankasýslunnar hafi ekki rætt málefni Páls sérstaklega á fundum sínum í vikunni, en RÚV greindi frá því á sunnudagskvöldinu, að Páll myndi ekki taka sæti sem forstjóri sýslunnar. Þorsteinn segir ekkert annað standa til í augnablikinu en að Páll taki við starfinu. Spurður hvenær hann tæki við svarar Þorsteinn því til að það sé óráðið. Hann bendir á að fráfarandi forstjóri Bankasýslunnar, Elín Jónsdóttir, sem sagði upp störfum í sumar, sé á sex mánaða uppsagnafresti, sem rennur út um áramótin. Því má vera að Páll taki ekki við starfinu fyrr en þá. Þorsteinn segist reikna með að Bankasýslan muni funda um málefni Páls þegar færi gefst, en nú sé stjórnin upptekin við söluferli hlutabréfa, sem ríkið á í ýmsum sparisjóðum.
Tengdar fréttir Treystir því að Páll hafi verið ráðinn á faglegum forsendum Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segist treysta því að faglega hafi verið staðið að ráðningu Páls Magnússonar í starf forstjóra Bankasýslu ríkisins. Steingrímur ætlar hins vegar að óska eftir upplýsingum um ráðningarferlið. 4. október 2011 12:05 Ráðherra hyggst óska skýringa "Þú getur rétt ímyndað þér hvort ég hafi ekki skoðanir á þessu en ég bara kýs að tjá mig ekki að svo stöddu,“ segir Páll Magnússon, nýráðinn forstjóri Bankasýslu ríkisins, um háværar gagnrýnisraddir sem heyrst hafa um ráðninguna. Málið standi ekki upp á hann heldur stjórn Bankasýslunnar. 7. október 2011 06:00 Bankasýslan réði reynsluminnsta umsækjandann Páll Magnússon, nýráðinn forstjóri Bankasýslu ríkisins, er sá umsækjenda um starfið sem minnsta reynslu hefur af störfum fyrir fjármálastofnanir. Stjórnarformaður Bankasýslunnar telur að tengsl Páls við einkavæðingu bankanna sé ekki ókostur fyrir starfið. Aðrir umsækjendur um stöðuna voru: Karl Finnbogason sem starfar sem sérfræðingur hjá eignastýringu Bankasýslu ríkisins. Hann er með framhaldsmenntun í hagfræði og hefur um þriggja ára reynsla af stjórnunarstörfum hjá fjármálastofnunum. Kolbrún Jónsdóttir viðskiptafræðingur. Hún situr í stjórn Íslandsbanka fyrir hönd Bankasýslu ríkisins og hefur rúmlega áratugs reynslu af stjórnunarstörfum hjá fjármálastofnunum Ólafur Örn Ingólfsson hagfræðingur sótti einnig um. Hann hefur um 30 ára reynsla af störfum í fjármálastofnunum, stærstan hluta sem stjórnandi. Páll Magnússon er með BA í guðfræði og MPA í opinberri stjórnsýslu. Hann hefur sinnt fjölda trúnaðarstarfa fyrir Framsóknarflokkinn; vður bæjarritari hjá Kópavogsbæ, sviðsstjóri stjórnsýslusviðs, aðstoðarmaður ráðherra og stjórnarmaður hjá Landsvirkjun. Af þessu er ljóst að Páll er með minnstu menntunina og minnstu reynsluna þegar kemur að störfum hjá fjármálastofnunum. "Það er rétt hjá þér að Páll skoraði ekki fremst umsækjenda á þessum sviði en heildarmatið var honum í vil en það eru margir þættir sem eru metnir," segir Þorsteinn Þorsteinsson, stjórnarformaður Bankasýslunnar. Það er stjórn stofnunarinnar sem sá alfarið um ráðninguna, í samvinnu við Capacent. Aðspurður segir Þorsteinn að það hafi ekki verið neitt eitt atriðið sem gerði útslagið vegna ráðningar Páls. "Nei, ég mynd ekki segja það hefði verið eitt kannski. Hann stóð sig mjög vel í viðtölum og kom vel fyrir og fékk mjög góðmeðmæli," segir hann. Þorsteinn nefnir sérstaklega að Páll hefur víðtæka reynslu úr stjórnkerfinu og það hafi vegið þungt. Trúnaðarstörf fyrir Framsóknarflokkinn eru áberandi á ferillsskrá Páls. Þorsteinn neitar því aðspurður að pólitík hafi ráðið för við ráðninguna. "Nei, það var alls ekki nein pólitík," segir hann. Páll var aðstoðarmaður Valgerðar Sverrisdóttur, fyrrverandi viðskiptaráðherra, þegar bankarnir voru einkavæddir. Nú er hann óneitanlega nokkuð tengdur einkavæðingunni og þessi einkavæðing var gagnrýnd í rannsóknarskýrslu alþingis. Finnst þér þetta ekki óheppilegt? "Við ákváðum að líta ekki til þessa sérstaklega og töldum að við hefðum ekki rétt til þess í raun og veru að setja á hann neinn mínus fyrir þetta atriði sérstaklega," segir Þorsteinn. 2. október 2011 18:45 Stjórnarformaður Bankasýslunnar kannast ekki við frétt RÚV Stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins, Þorsteinn Þorsteinsson, kannast ekki við það að Páll Magnússon taki ekki til starfa sem forstjóri Bankasýslu ríkisins eins og fréttastofa RÚV greindi frá. 16. október 2011 19:15 Forstjóri Bankasýslunnar með 845 þúsund í laun Ráðning forstjóra Bankasýslu ríkisins er hneyksli, segir formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis. Páll Magnússon fær 845 þúsund krónur á mánuði þegar hann sest í forstjórastólinn. 6. október 2011 18:45 Óska eftir rökstuðningi fyrir ráðningu Páls Umsækjendur um stöðu forstjóra Bankasýslu ríkisins hafa óskað eftir rökstuðningi fyrir ráðningu Páls Magnússonar í stöðu forstjóra stofnunarinnar. Páll Magnússon, fyrrverandi aðstoðarmaður iðnaðarráðherra, var ráðinn í starfið en hann er með BA próf í guðfræði og meistarapróf í opinberri stjórnsýslu. Aðrir umsækjendur höfðu menntun sem var sérsniðnari að störfum í bankakerfinu. 12. október 2011 09:45 Stjórn Bankasýslunnar ver ráðningu Páls Stjórn Bankasýslu Ríkisins segir að Páll Magnússon hafi uppfyllt allar kröfur sem gerðar voru til umsækjenda um starf forstjóra Bankasýslunnar. 13. október 2011 18:57 Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Óveður gengur yfir landið Innlent Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Erlent Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Innlent Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Innlent Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Fleiri fréttir Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Sjá meira
Treystir því að Páll hafi verið ráðinn á faglegum forsendum Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segist treysta því að faglega hafi verið staðið að ráðningu Páls Magnússonar í starf forstjóra Bankasýslu ríkisins. Steingrímur ætlar hins vegar að óska eftir upplýsingum um ráðningarferlið. 4. október 2011 12:05
Ráðherra hyggst óska skýringa "Þú getur rétt ímyndað þér hvort ég hafi ekki skoðanir á þessu en ég bara kýs að tjá mig ekki að svo stöddu,“ segir Páll Magnússon, nýráðinn forstjóri Bankasýslu ríkisins, um háværar gagnrýnisraddir sem heyrst hafa um ráðninguna. Málið standi ekki upp á hann heldur stjórn Bankasýslunnar. 7. október 2011 06:00
Bankasýslan réði reynsluminnsta umsækjandann Páll Magnússon, nýráðinn forstjóri Bankasýslu ríkisins, er sá umsækjenda um starfið sem minnsta reynslu hefur af störfum fyrir fjármálastofnanir. Stjórnarformaður Bankasýslunnar telur að tengsl Páls við einkavæðingu bankanna sé ekki ókostur fyrir starfið. Aðrir umsækjendur um stöðuna voru: Karl Finnbogason sem starfar sem sérfræðingur hjá eignastýringu Bankasýslu ríkisins. Hann er með framhaldsmenntun í hagfræði og hefur um þriggja ára reynsla af stjórnunarstörfum hjá fjármálastofnunum. Kolbrún Jónsdóttir viðskiptafræðingur. Hún situr í stjórn Íslandsbanka fyrir hönd Bankasýslu ríkisins og hefur rúmlega áratugs reynslu af stjórnunarstörfum hjá fjármálastofnunum Ólafur Örn Ingólfsson hagfræðingur sótti einnig um. Hann hefur um 30 ára reynsla af störfum í fjármálastofnunum, stærstan hluta sem stjórnandi. Páll Magnússon er með BA í guðfræði og MPA í opinberri stjórnsýslu. Hann hefur sinnt fjölda trúnaðarstarfa fyrir Framsóknarflokkinn; vður bæjarritari hjá Kópavogsbæ, sviðsstjóri stjórnsýslusviðs, aðstoðarmaður ráðherra og stjórnarmaður hjá Landsvirkjun. Af þessu er ljóst að Páll er með minnstu menntunina og minnstu reynsluna þegar kemur að störfum hjá fjármálastofnunum. "Það er rétt hjá þér að Páll skoraði ekki fremst umsækjenda á þessum sviði en heildarmatið var honum í vil en það eru margir þættir sem eru metnir," segir Þorsteinn Þorsteinsson, stjórnarformaður Bankasýslunnar. Það er stjórn stofnunarinnar sem sá alfarið um ráðninguna, í samvinnu við Capacent. Aðspurður segir Þorsteinn að það hafi ekki verið neitt eitt atriðið sem gerði útslagið vegna ráðningar Páls. "Nei, ég mynd ekki segja það hefði verið eitt kannski. Hann stóð sig mjög vel í viðtölum og kom vel fyrir og fékk mjög góðmeðmæli," segir hann. Þorsteinn nefnir sérstaklega að Páll hefur víðtæka reynslu úr stjórnkerfinu og það hafi vegið þungt. Trúnaðarstörf fyrir Framsóknarflokkinn eru áberandi á ferillsskrá Páls. Þorsteinn neitar því aðspurður að pólitík hafi ráðið för við ráðninguna. "Nei, það var alls ekki nein pólitík," segir hann. Páll var aðstoðarmaður Valgerðar Sverrisdóttur, fyrrverandi viðskiptaráðherra, þegar bankarnir voru einkavæddir. Nú er hann óneitanlega nokkuð tengdur einkavæðingunni og þessi einkavæðing var gagnrýnd í rannsóknarskýrslu alþingis. Finnst þér þetta ekki óheppilegt? "Við ákváðum að líta ekki til þessa sérstaklega og töldum að við hefðum ekki rétt til þess í raun og veru að setja á hann neinn mínus fyrir þetta atriði sérstaklega," segir Þorsteinn. 2. október 2011 18:45
Stjórnarformaður Bankasýslunnar kannast ekki við frétt RÚV Stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins, Þorsteinn Þorsteinsson, kannast ekki við það að Páll Magnússon taki ekki til starfa sem forstjóri Bankasýslu ríkisins eins og fréttastofa RÚV greindi frá. 16. október 2011 19:15
Forstjóri Bankasýslunnar með 845 þúsund í laun Ráðning forstjóra Bankasýslu ríkisins er hneyksli, segir formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis. Páll Magnússon fær 845 þúsund krónur á mánuði þegar hann sest í forstjórastólinn. 6. október 2011 18:45
Óska eftir rökstuðningi fyrir ráðningu Páls Umsækjendur um stöðu forstjóra Bankasýslu ríkisins hafa óskað eftir rökstuðningi fyrir ráðningu Páls Magnússonar í stöðu forstjóra stofnunarinnar. Páll Magnússon, fyrrverandi aðstoðarmaður iðnaðarráðherra, var ráðinn í starfið en hann er með BA próf í guðfræði og meistarapróf í opinberri stjórnsýslu. Aðrir umsækjendur höfðu menntun sem var sérsniðnari að störfum í bankakerfinu. 12. október 2011 09:45
Stjórn Bankasýslunnar ver ráðningu Páls Stjórn Bankasýslu Ríkisins segir að Páll Magnússon hafi uppfyllt allar kröfur sem gerðar voru til umsækjenda um starf forstjóra Bankasýslunnar. 13. október 2011 18:57