Innlent

Rými Sögusafnsins verður ekki selt

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Frá Sögusafninu í Perlunni.
Frá Sögusafninu í Perlunni.
Sá hluti Perlunnar þar sem Sögusafnið er rekið er ekki til sölu, segir Eiríkur Hjálmarsson, upplýsingafulltrúi Orkuveitu Reykjavíkur. Eins og kunnugt er voru tilboð í Perluna opnuð í gær og kom þá í ljós að sex tilboð hafa borist. Ekki er vitað hvernig þau líta út.

Ernst J Backman, sem rekur Sögusafnið, sagði við Vísi í kvöld að hann vissi ekki hvað yrði um safnið ef Perlan yrði seld. Hann segist hafa varið 120 milljónum í uppbyggingu þess. „Ég er svo sem ekkert farinn að velta því fyrir mér hvað ég á að gera ef ég þarf að fara," sagði Ernst í samtali við Vísi í kvöld. Hann viðurkenndi að hann væri kvíðinn vegna málsins og vissi ekkert hvernig það myndi fara.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×