Biskupsritari Ólafs Skúlasonar segir sig frá kirkjuþingi 13. júní 2011 11:07 "Þegar ég lít til baka yfir þetta tímabil sé ég eftir að hafa verið þarna og iðrast þess að hafa ekki einfaldlega sagt mig úr stjórn Prestafélagsins,“ segir séra Baldur. Mynd/JSE „
Ég hef sagt mig frá Kirkjuþinginu á morgun, þriðjudag. Ég tel að viðbrögð þess verði trúverðugri því færri sem þar eru sem komu við sögu," segir Baldur Kristjánsson, sóknarprestur í Ölfusi og fyrrum biskupsritari Ólafs Skúlasonar. Hann biður Sigrúnu Pálínu Ingvarsdóttur, Dagbjörtu Guðmundsdóttur og Stefaníu Þorgrímsdóttur fyrirgefningar. Rannsóknarnefnd þjóðkirkjunnar telur að Karli Sigurbjörnssyni og öðrum vígðum þjónum kirkjunnar hafi orðið á mistök í starfi er ásakanir á hendur Ólafi Skúlasyni biskupi komu fram árið 1996 og 2009. Skýrslan var gerð opinber á föstudaginn.Var of háður Ólafi „Rannsóknarnefnd sú sem Kirkjuþing stofnaði til til þess að rannsaka viðbrögð kirkjunnar við ásökunum á hendur Ólafi Skúlasyni gerir sérstakar athugasemd við það að ég skuli hafa tekið ákvörðun um að sitja fundi stjórnar Prestafélags Íslands í febrúar og mars 1996 þegar málefni sem snertu kynferðisafbrot þáverandi biskups voru til umfjöllunar. Málið var þá til umfjöllunar hjá Siðanefnd Prestafélagsins. Hún gerir einnig athugasemdir við það að aðrir stjórnarmeðlimir hafi ekki kosið mig út," segir Baldur í yfirlýsingu sem birtist á bloggsvæði hans á Eyjunni. Þar segir hann gagnrýni rannsóknarnefndarinnnar réttmæta. Hann hafi verið of nálægur málinu og of háður Ólafi. „Ég átti auðvitað að segja mig frá þessu strax. Það var auðvitað ekki hægt að búast við því að ég væri hæfur til að fjalla um þessi mál þar sem það snerti svo mjög minn yfirmann. Þegar ég lít til baka yfir þetta tímabil sé ég eftir að hafa verið þarna og iðrast þess að hafa ekki einfaldlega sagt mig úr stjórn Prestafélagsins."„Eiga alla mína samúð og stuðning" Baldur segist hafa hugleitt ýmislegt í tengslum við málið og ætla að tjá sig ennfrekar síðar. „Og þær Sigrún Pálína Ingvarsdóttir, Dagbjört Guðmundsdóttir og Stefanía Þorgrímsdóttir eiga alla mína samúð og stuðning og virðingu. Ég hef áður beðið Sigrúnu og Dagbjörtu fyrirgefningar persónulega fyrir mína hönd og kirkjunnar og ítreka það hér og bið Stefáníu að sjálfsögðu fyrirgefningar líka." Kirkjuþing kemur saman á morgun en þá mun Karl Sigurbjörnsson, biskup, tjá sig í fyrsta skipti um innihald skýrslunnar og niðurstöður rannsóknarnefndarinnar. Kirkjuþing fer með æðsta vald í málefnum þjóðkirkjunnar. Á kirkjuþingi eiga sæti 29 kjörnir fulltrúar, 12 vígðir menn og 17 leikmenn, auk þess biskup Íslands, tveir vígslubiskupar og einn fulltrúi guðfræðideildar Háskóla Íslands með málfrelsi og tillögurétt.Yfirlýsingu Baldurs.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Fleiri fréttir Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Sjá meira