Össur fundaði með utanríkisráðherrum ESB 12. mars 2011 15:00
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra tók í dag þátt í fundi utanríkisráðherra Evrópusambandsins og umsóknarríkja sem haldinn var í Gödöllö í Ungverjalandi. Ráðherrarnir ræddu ástandið í Norður-Afríku og Arabaheiminum, stækkunarmál sambandsins og hamfarirnar í Japan. „Ráðherrarnir sögðu nauðsynlegt að ríki heims ynnu saman að lausn átakanna í Líbíu en utanríkismálastjóri ESB heldur í dag til fundar við Arababandalagið í Kaíró í Egyptalandi," segir í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Þá segir að Össur hafi þakkað fyrir þær góðu móttökur sem Ísland hefði fengið hjá Evrópusambandinu en þetta væri í fyrsta skipti sem íslenskur utanríkisráðherra tæki þátt í fundi af þessu tagi. „Ráðherra ítrekaði fordæmingu íslenskra stjórnvalda á framferði einræðisherrans Gaddafis gegn óbreyttum borgurum í Líbíu. Hann lagði áherslu á mikilvægi þess að Sameinuðu þjóðirnar kæmu sér saman um til hvaða aðgerða ætti að grípa til að lina hörmungar almennings í landinu. Á fundinum var rætt um möguleikann á að alþjóðasamfélagið gripi til loftferðabanns yfir Líbíu og var íslenski utanríkisráðherrann í hópi þeirra sem taldi það ekki einboðna aðgerð, og þyrfti að kanna til hlítar afleiðingar hennar áður en tekin væri ákvörðun um slíkt.“Hitti kollega frá Svartfjallalandi Utanríkisráðherra átti einnig fund með utanríkisráðherra Svartfjallalands, Milan Rocen, en landið bættist nýlega í hóp umsóknarríkja Evrópusambandsins. „Rocen óskaði eftir samstarfi við Íslendinga og sagði Svartfellinga vilja læra af reynslu Íslendinga í samningaferlinu. Þá átti Össur einnig fund með Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, um málefni norðurslóða og kynnti honum hugmyndir Íslendinga varðandi Norðurskautsráðið. Svíar taka við formennsku í Norðurskautsráðinu í maí.“
Mest lesið Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Innlent Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Innlent „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Innlent Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Innlent „Það átti að taka mig í karphúsið“ Innlent Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Innlent Selenskí undir miklum þrýstingi Innlent „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Innlent Játaði meira og meira eftir því sem á leið Innlent Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Erlent Fleiri fréttir „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Samfylkingarmönnum í Reykjavík fjölgað um 72 prósent Heimilisofbeldismálin alvarlegri en áður og fundað um Úkraínu í Abu Dhabi Svona var Pallborðið með Heiðu Björgu og Pétri Játaði meira og meira eftir því sem á leið Fann innbrotsþjófinn sofandi á heimilinu Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Sjá meira