Niðurlagning Varnarmálastofnunnar í uppnámi Valur Grettisson skrifar 11. desember 2010 13:49 Alþingi. Framsóknarflokkurinn hefur óskað eftir fundi vegna Varnamálastofnunnar í dag.
Þingmenn Framsóknarflokksins hafa farið fram á fund með utanríkismálanefnd klukkan þrjú í dag vegna málefna Varnarmálastofnunnar. Hana á að leggja niður um áramótin en sérstök verkefnastjórn vinnur að því að leysa hana upp. Meðal annars á hún að færa verkefni stofnunarinnar í önnur ráðuneyti og ákveða örlög þeirra fimmtíu starfsmanna sem þar starfa. „Við fengum þær upplýsingar fyrir um tíu dögum síðan að það væri algjör upplausn í verkefnastjórninni," segir Sigurður Ingi Jóhannsson, starfandi þingflokksformaður Framsóknarflokksins um óeiningu í verkefnastjórninni sem hann vill meina að stefni framtíð þeirra sem hjá stofnunni starfa í algjört uppnám. Sigurður fullyrðir að þessi óeining innan verkefnastjórnarinnar lýsi sér þannig að ráðuneytin rífist um það hver skal fá hvað. Og um það sé harðlega deilt. Sjálfur segir Sigurður Ingi að það sé knappur tími til stefnu ætli ríkisstjórninni að takast að leysa stofnunina upp með farsælum hætti. Þá gagnrýnir Sigurður einnig fá svör varðandi varnarmálaöryggisstefnu Íslendinga. „Maður þarf beinlínis að hrópa hvar öryggismálastefna Íslendinga sé, og hvar er utanríkismálastefnan?" spyr Sigurður Ingi sem þykja svörin loðin. Hann bætir svo við að málið sé í algjörri upplausn. Við þetta bætist hörð gagnrýni Fréttablaðsins í dag. Meðal annars skrifaði ritstjóri blaðsins, Ólafur Stephensen, harðorðan leiðara með yfirskriftinni: „Varnarlaus gegn klúðri." Þar skrifaði Ólafur meðal annars: „Niðurlagning Varnarmálastofnunar virðist ætla að verða hið mesta klúður. Stofnunin verður lögum samkvæmt lögð niður eftir þrjár vikur. Eins og fram kemur í fréttaskýringu hér í blaðinu í gær hefur enn ekki verið ákveðið hvaða stofnanir taka þá að sér verkefni hennar. Málið er enn statt á sama stað og síðastliðið vor, þegar frumvarp um að leggja niður stofnunina var lagt fram." Einnig greinir Vísir frá því í dag að fyrrverandi forstjóri Varnarmálastofnunnar, Ellisif Tinna Víðisdóttir, hafi sagt í samtali við bandaríska sendiráðið, að hún efaðist um að stofnunin yrði leyst upp á ábyrgan hátt þar sem hún teldi að ákvörðunin væri einungis tekin til þess að sefa þingflokk VG. Þetta kom fram í pósti sem Wikileaks lak út frá sendiráði Bandaríkjanna hér á landi og er dagsettur í desember 2009.
Tengdar fréttir Varnarlaus gegn klúðri Niðurlagning Varnarmálastofnunar virðist ætla að verða hið mesta klúður. Stofnunin verður lögum samkvæmt lögð niður eftir þrjár vikur. Eins og fram kemur í fréttaskýringu hér í blaðinu í gær hefur enn ekki verið ákveðið hvaða stofnanir taka þá að sér verkefni hennar. 11. desember 2010 06:30 Segir Varnarmálastofnun lagða niður í verðlaunaskyni fyrir ESB Í skjölum Wikileaks, sem voru birt í Fréttablaðinu í dag, kemur fram að sendiherra Bandaríkjanna hér á landi, Carol Van Woorst, fullyrðir að Ellisif Tinna Víðisdóttir, sem var forstjóri Varnamálastofnunnar, hafi sagt í samtali við sendiráðið, að hún teldi að stofnunin væri lögð niður til þess að verðlauna Vinstri græna vegna stuðnings við ESB umsóknina. 11. desember 2010 11:57 Wikileaks: Bandaríkin börðust gegn lokun Varnarmálastofnunar Bandarísk stjórnvöld beittu Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra miklum þrýstingi til að reyna að koma í veg fyrir að Varnarmálastofnun yrði lögð niður. Þetta kemur fram í leyniskjölum sem lekið var til Wikileaks. 7. desember 2010 06:00 Mest lesið Starfsmaðurinn undir sérstöku eftirliti í fyrra Innlent Vaktin: Ráðast örlög Úkraínu í Washington DC? Erlent Auglýsingaskilti lýsti upp allan Garðabæ Innlent Jarðskjálfti fjórum kílómetrum frá höfuðborgarsvæðinu Innlent Í gæsluvarðhaldi fram í september Innlent RÚV grafi undan tilvist sinni með nýrri auglýsingu Innlent Lögregla leitar manns vegna rannsóknar Innlent Ákærður fyrir fjórar nauðganir Erlent Aukin gæsla og breytt snið á Menningarnótt Innlent Trump segir Selenskí geta valið um að binda enda á stríðið eða berjast áfram Erlent Fleiri fréttir Hringir daglega í brotaþola og lykilvitni Faðir á Múlaborg í áfalli, leiðtogafundur í Washington og símtöl sakbornings Stjórnvöld þurfi að bregðast við veðmálavandanum Jarðskjálfti fjórum kílómetrum frá höfuðborgarsvæðinu Lögregla leitar manns vegna rannsóknar Vesturbæjarlaug aftur lokað vegna viðgerðar Auglýsingaskilti lýsti upp allan Garðabæ Göngu- og hjólabrú við Dugguvog opnuð síðdegis í dag Tollum Evrópusambandsins frestað um óákveðinn tíma Aukin gæsla og breytt snið á Menningarnótt Eldur á Kleppsvegi Starfsmaðurinn undir sérstöku eftirliti í fyrra Grétar Br. Kristjánsson lögmaður látinn Ögurstund í Washington, spilavandi ungra karla og aukin gæsla á Menningarnótt Fólk verði oft samdauna sérkennilegum aðstæðum í vinnunni „Þetta er stórt mál og tekur auðvitað tíma“ Í gæsluvarðhaldi fram í september Fullir í flugi Einn handtekinn vegna líkamsárásar og annar vegna innbrots RÚV grafi undan tilvist sinni með nýrri auglýsingu Hundrað þúsund ferðamenn heimsóttu Jökulsárlón í júlí Ekkert bann við opnum kvíum en „skussinn borgi brúsann“ Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Loka Miðfjarðará með grjóti og segja stjórnvöld hafa dregið lappirnar Fundað um Múlaborg og eldislöxum varist Braust inn á flugvallarsvæðið Ekkert bendi til að brotið hafi verið á fleiri börnum Hnullungur þveraði veginn þar sem banaslys varð „Það bjó enginn í húsinu“ Ekkert sem bendi til þess að um sé að ræða óvinveitt geimskip Sjá meira
Varnarlaus gegn klúðri Niðurlagning Varnarmálastofnunar virðist ætla að verða hið mesta klúður. Stofnunin verður lögum samkvæmt lögð niður eftir þrjár vikur. Eins og fram kemur í fréttaskýringu hér í blaðinu í gær hefur enn ekki verið ákveðið hvaða stofnanir taka þá að sér verkefni hennar. 11. desember 2010 06:30
Segir Varnarmálastofnun lagða niður í verðlaunaskyni fyrir ESB Í skjölum Wikileaks, sem voru birt í Fréttablaðinu í dag, kemur fram að sendiherra Bandaríkjanna hér á landi, Carol Van Woorst, fullyrðir að Ellisif Tinna Víðisdóttir, sem var forstjóri Varnamálastofnunnar, hafi sagt í samtali við sendiráðið, að hún teldi að stofnunin væri lögð niður til þess að verðlauna Vinstri græna vegna stuðnings við ESB umsóknina. 11. desember 2010 11:57
Wikileaks: Bandaríkin börðust gegn lokun Varnarmálastofnunar Bandarísk stjórnvöld beittu Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra miklum þrýstingi til að reyna að koma í veg fyrir að Varnarmálastofnun yrði lögð niður. Þetta kemur fram í leyniskjölum sem lekið var til Wikileaks. 7. desember 2010 06:00