Verkstjórinn segir dásamlegt á Búðarhálsi 3. desember 2010 19:01
Eftir hlé í nærri áratug eru virkjanaframkvæmdir hafnar á ný á hálendinu sunnan jökla. Verkstjóri við Búðarháls, sem unnið hefur að flestum stórvirkjunum sunnan jökla allt frá Búrfellsvirkjun, segir þetta dásamlegt. Vinna við Búðarhálsvirkjun fer rólega af stað þessa dagana en þetta er sjötta virkjunin sem byggð er á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu. Sú síðasta var Vatnsfellsvirkjun sem var gangsett fyrir níu árum. Karlarnir sem nú eru mættir á Búðarhálsinn hafa sumir langa reynslu af slíkri vinnu, eins og Benedikt Benediktsson, verkstjóri hjá Ístaki. Hann byrjaði í Búrfelli árið 1967 og hefur síðan unnið við flestar virkjanir á svæðinu nema Sigöldu. Nú er hann að koma úr vinnu frá Noregi. Sprengistjórinn Þórir Sverrisson byrjaði 1983 á hálendinu, var í Kvíslaveitum, Hrauneyjum og Sultartanga. Hann er einnig að koma úr vinnu frá útlöndum; var tvö ár í Grænlandi og Noregi, og segir það ágæta tilbreytingu að koma heim aftur. Hitt hafi verið orðið gott í bili. Hann hafi hins neyðst til að vinna erlendis þar sem ekkert hafi verið um að vera á Íslandi. En fylgir því einhver sérstök stemmning að vinna við gerð virkjana á hálendinu? Benedikt segir alltaf stemmningu ef vel gangi. Það sé mikið af fólki og tækjum og það séu spennandi tímar þegar allir eru að gera það gott. Hann segir gríðarlega fallegt á hálendinu og það sé léttir að vinna þar miðað við að vera á Reykjavíkursvæðinu innan um umferðartraffík. Þetta sé alveg dásamlegt.
Mest lesið Boðuð í þingsal á versta tíma: „Brynjar, þú ert nú meiri gaurinn!“ Innlent Róa á nýnasistamið í leit að ICE-liðum Erlent Segir Trump ekki reiðan Íslandi Erlent Helsta klappstýran sögð slegin yfir sálarástandi Trumps Erlent Hættu að fá boð á vísindaráðsfundi almannavarna: „Menning þöggunar og útilokunar“ Innlent Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Innlent Afneitun helfararinnar verði gerð refsiverð og fræðsla aukin Innlent Óvissa um framboð bæði Írisar og listans Innlent Innlit á Litla-Hraun í erlendri heimildarmynd Innlent Ákærður fyrir að taka son sinn hálstaki Innlent Fleiri fréttir Spyr hvort ekki sé tími á að Palestínumenn snúi aftur í friðinn heima Hvort myndu þau hringja fyrst til baka í Pétur eða Hildi? 28 prósent Selfyssingar: „Eitthvað í mjólkinni eða smjörinu“ Erlendir aðilar reyni að hafa vit fyrir Íslendingum Óttast að útlendingafrumvarpið þjóni ekki tilgangi sínum Sigurvíma, hópuppsögn og auðar brekkur Boðuð í þingsal á versta tíma: „Brynjar, þú ert nú meiri gaurinn!“ Elísabet tekur tímabundið við embætti landlæknis Ákærður fyrir að taka son sinn hálstaki Metaðsókn í starfsendurhæfingu Óvissa um framboð bæði Írisar og listans Konan enn þungt haldin Leiðir samningaviðræðurnar við bændur Helgi Bjartur einnig ákærður fyrir vændiskaup Hættu að fá boð á vísindaráðsfundi almannavarna: „Menning þöggunar og útilokunar“ „Tel nægja að menn séu að fremja ítrekuð afbrot“ Ólga meðal eldfjallafræðinga og bruni á Húsavík Fjármál barnanna geti haft áhrif á eftirlaun foreldranna Áfengi efnafræðilega skylt lampaolíu, terpentínu og bensíni Karlarnir leiða að ósk kvennanna Þessi skipa lista Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ Nær altjón í iðnaðarhúsnæði eftir bruna á Húsavík Guðrún svarar fyrir gömul ummæli um aðildarviðræður að ESB Afneitun helfararinnar verði gerð refsiverð og fræðsla aukin Rúmlega tvöhundruð skjálftar við Lambafell í Þrengslum Höfðu afskipti af „trylltum“ manni og ofurölvi útlendingi Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Þrír eldar á sama tíma á höfuðborgarsvæðinu Innlit á Litla-Hraun í erlendri heimildarmynd Púðurtunnan Vestanhafs, þandar taugar og hörð lending Sjá meira