Búast við að Keflavíkurflugvöllur verði lokaður fyrri hluta þriðjudags Jón Hákon Halldórsson skrifar 24. apríl 2010 17:17
Icelandair hefur sett upp flugáætlun fyrir næsta þriðjudag sem tekur mið af áframhaldandi flugtakmörkunum á Keflavíkurflugvelli vegna ösku frá gosinu í Eyjafjallajökli. Flugáætlun Icelandair þar til síðdegis á þriðjudag verður þannig með svipuðum hætti og sú áætlun sem sett var upp fyrir helgina. Flugvöllurinn í Glasgow verður miðstöð millilandaflugs Icelandair og Boeing 757 þotur Icelandair fljúga þaðan til og frá Bandaríkjunum og til og frá áfangastöðum í Evrópu. Tvisvar til þrisvar á dag er síðan flogið með farþega milli Glasgow og Akureyrar. Því má segja að þeir sem fara til og frá Íslandi með Icelandair fram yfir helgi muni millilenda í Glasgow. Áfram er rétt að hvetja farþega til þess að fylgjast vel með því hvernig flugi Icelandair til og frá landinu verður háttað því nauðsynlegt getur reynst að gera breytingar með skömmum fyrirvara. Farþegar eru hvattir til þess að fylgjast með fréttum og upplýsingum um flugáætlun, komu og brottfarartíma fluganna, meðal annars á icelandair.is. Þjónustuver Icelandair verður opið um helgina. Rútuferðir eru í boði milli BSÍ í Reykjavíkur og Akureyrarflugvallar.
Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira