Mikill hallarekstur á ríkissjóði í janúar 23. mars 2010 13:26
Samkvæmt greiðsluuppgjöri ríkissjóðs er handbært fé frá rekstri neikvætt um tæpa 13 milljarða kr., sem er tæplega 29 milljarða kr. lakari útkoma en árið 2009. Tekjur reyndust 27,6 milljörðum kr. minni en í fyrra á meðan gjöldin jukust um tæpa 3,8 milljarða kr. Fjallað er um málið á vefsíðu stjórnarráðsins. Þar segir að það sem fyrst vekur athygli er að ekki er lengur hið mikla innstreymi tekna af fjármagnstekjuskatti sem verið hefur í janúarmánuði undanfarin ár. Ástæðan er kerfisbreytingin sem gerð var á sl. ári, er gjalddögum var fjölgað og skilum skattsins þannig flýtt. Tekjur ríkissjóðs hafa verið yfir 50 milljarðar kr. í janúarmánuði undanfarin þrjú ár og fjármagnstekjuskatturinn þar af yfir 20 milljarðar kr. Um mitt ár 2009 voru hins vegar tekin upp ársfjórðungsleg skil á staðgreiðsluskyldum fjármagnstekjuskatti og var skatti af fjármagnstekjum fyrstu þriggja ársfjórðunganna skilað á nýjum gjalddögum í ágúst og nóvember. Skattur af tekjum 4. ársfjórðungs var síðan á eindaga 5. febrúar 2010. Að óbreyttu kerfi hefðu allar þessar greiðslur verið á eindaga í lok janúar 2010. Þar sem árstíðarsveifla í skatttekjum er töluverð er venjan að bera nýjar mánaðarlegar innheimtutölur saman við sama mánuð í fyrra, en slíkur samanburður er ómarktækur nú nema hvað varðar fjárstreymi til ríkissjóðs, en ekki t.d. stærð tekjustofna eða álagða skatta. Skatttekjur og tryggingagjöld námu 24,7 milljarðar kr. sem er innan við helmingur þess sem var í janúar 2009 ef ekki er leiðrétt fyrir fyrrnefndri gjalddagabreytingu. Jafnvel þótt leiðrétt sé fyrir henni er samdrátturinn milli ára mikill, eða 16,5% að raunvirði. Skattar á tekjur og hagnað námu 9,7 milljarði kr. í janúar. Tekjuskattur einstaklinga dróst lítillega saman miðað við janúar í fyrra, en innheimtan í janúar er að mestu leyti af tekjum desembermánaðar og áhrif nýs skattkerfis því ekki komin fram. Fyrirframgreiðsla á tekjuskatti lögaðila dróst saman um 19,7% milli ára. Greidd gjöld nema 42,7 milljarða kr. og aukast um 3,8 milljarða kr. frá fyrra ári, eða um 9,7%. Milli ára hækka útgjöld almennrar opinberrar þjónustu mest eða um 3,8 milljarða kr. þar sem vaxtagjöld ríkissjóðs skýrir 3,5 milljarða kr. Útgjöld til menntamála aukast um 1,1 milljarð kr. þar sem útgjöld til Lánasjóðs íslenskra námsmanna aukast um 1,5 milljarð kr. milli ára. Útgjöld til löggæslu, réttargæslu og öryggismála aukast um 764 milljónir króna milli ára þar sem fjárfesting Landhelgissjóðs í varðskipi skýrir hækkunina að langstærstu leyti. Útgjöld til almannatrygginga og velferðarmála dragast saman um 1,8 milljarð kr. milli ára þar sem útgjöld Atvinnuleysistryggingasjóðs aukast um 882 milljónir króna en útgjöld vegna barnabóta að upphæð 2,3 milljarða kr. greiðast í byrjun febrúar í ár en í lok janúar 2009.
Mest lesið Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Neytendur Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Viðskipti innlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Fleiri fréttir Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Sjá meira