Erlent

Afhentu dagbækur Mladic

Ratko Mladic
Annar tveggja sakborninga dómstólsins sem enn eru á flótta.
Nordicphotos/AFP
Ratko Mladic Annar tveggja sakborninga dómstólsins sem enn eru á flótta. Nordicphotos/AFP

Serbnesk stjórnvöld hafa sent stríðsglæpadómstól Sameinuðu þjóðanna í Haag dagbækur Ratko Mladic, sem fundust við húsleit á heimili eiginkonu hans í Belgrad. Mladic var yfirmaður hers Bosníu-Serba í Bosníustríðinu árin 1992-95 og hefur verið sakaður um margvíslega stríðsglæpi. Hann hefur verið á flótta frá lokum stríðsins.

Dómstóllinn hyggst finna leið til að nota dagbækurnar í máli gegn Radovan Karadzic leiðtoga Bosníu-Serba.- gb



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×