Erlent

Picasso og Matisse stolið af safni í París

Gengið frá römmunum Þjófurinn virðist hafa gefið sér góðan tíma þegar hann fjarlægði verkin úr römmunum. fréttablaðið/AP
Gengið frá römmunum Þjófurinn virðist hafa gefið sér góðan tíma þegar hann fjarlægði verkin úr römmunum. fréttablaðið/AP

Þjófur hafði á brott með sér fimm dýrmæt listaverk úr Nútímalistasafninu í París í fyrrinótt. Verkin eru meðal annars eftir Picasso og Matisse. Virði þeirra er talið nema nærri 100 milljónum evra, eða um 16 milljörðum króna.

Þjófavarnakerfi í nokkrum sala safnsins hefur verið bilað síðan í lok mars, að því er segir í yfirlýsingu frá Bertrand Delanoe, borgarstjóra í París.

Öryggisfyrirtækið hafði pantað varahluti í þjófavarnakerfið, en þeir höfðu ekki enn borist fyrirtækinu frá framleiðanda.

Á öryggismyndavélum sást einungis einn maður að verki innan veggja safnsins, og var hann grímuklæddur. Ekki er vitað hvort aðrir hafi beðið fyrir utan eða hann haft aðra vitorðsmenn.

„Þetta er stórþjófnaður, á því leikur ekki vafi,“ segir Stephane Thefo, sérfræðingur alþjóðalögreglunnar Interpol sem sér um rannsóknir á alþjóðlegum listaverkaþjófnuðum. „Þessi verk eru ómetanleg.“

Hann sagðist efast um að þjófurinn hafi verið einn að verki, jafnvel þótt aðrir hafi ekki sést á öryggismyndavélum.

Næturvörður í safninu tók eftir því rétt fyrir klukkan sjö í gærmorgun að málverkin voru horfin.

Á svölum fyrir aftan safnið fundust tómir rammar verkanna, en svo virðist sem þjófurinn hafi fjarlægt verkin úr römmunum af mikilli nærgætni. Við svalirnar var brotin rúða, sem þjófurinn virðist hafa farið í gegnum.

Erfitt hefur reynst að leggja ákveðið mat á verðmæti verkanna, enda þykja þau ómetanleg. Fyrst taldi skrifstofa saksóknara verðmæti þeirra geta numið allt að 500 milljónum evra, en síðar var sú tala lækkuð niður í 90 milljónir.

Christophe Girard, aðstoðarmenningarráðherra Parísarborgar, sagði heildarverðmæti verkanna nema tæplega 100 milljónum.

gudsteinn@frettabladid.is



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×