Svört skýrsla Skipulagsstofnunnar um álver á Bakka Valur Grettisson skrifar 25. nóvember 2010 10:19 Álver á bakka. Skýrsla Skipulagsstofnunnar er kolsvört.
Það er niðurstaða Skipulagsstofnunar að heildaráhrif Kröfluvirkjunar II, Þeistareykjavirkjunar, álvers á Bakka við Húsavík og háspennulína frá Kröflu og Þeistreykjum að álveri á Bakka muni óhjákvæmilega hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif í skilningi laga um mat á umhverfisáhrifum. Þetta kemur fram í áliti skipulagsstofnunnar um mat á umhverfisáhrifum vegna álvers á Bakka við Húsavik. Þá munu framkvæmdirnar auka losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi verulega þar sem hlutdeild framkvæmdanna í heildarlosun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi muni nema um 14 prósent af heildarlosun koltvísýrings - ígilda á ári auk þess að leiða óhjákvæmilega til losunar mengandi efna sem rýra loftgæði. Þá kemur ennfremur fram að Skipulagsstofnun telji mikla óvissu vera fyrir hendi um það hvort unnt verði að halda orkuvinnslu svo stórra virkjana eins og fyrirhugaðar eru innan marka sjálfbærni. Svo segir orðrétt í niðurstöðu Skipulagsstofnunnar: „Ljóst er að framkvæmdirnar munu skapa atvinnutækifæri á svæðinu, en stofnunin hvetur sveitarstjórnir og framkvæmdaraðila til að vinna að raunhæfum áætlunum um samfélagslega uppbyggingu í tengslum við stöðu framkvæmdanna hverju sinni. Framkvæmdaraðilar kynna í matsskýrslum mótvægisaðgerðir og verklag til að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum þeirra, auk þess sem Skipulagsstofnun leggur fram skilyrði vegna einstakra framkvæmda. Í ljósi þess hve framkvæmdirnar munu valda umfangsmiklum áhrifum á stóru svæði er það mat Skipulagsstofnunar að boðaðar mótvægisaðgerðir framkvæmdaaðila geti ekki fyrirbyggt eða bætt fyrir áhrifin og því munu framkvæmdirnar fjórar í heild sinni valda umtalsverðum umhverfisáhrifum." Framkvæmdirnar munu skerða 17.000 hektara af ósnortnum víðernum, sem eru mikilvægt aðdráttarafl í ferðaþjónustu og útivist að mati Skipulagsstofnunnar. Hér fyrir neðan má finna skýrslu Skipulagsstofnunnar í heild.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Fleiri fréttir Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sjá meira