Erlent

Tafir í krabbameinsmeðferð

Eyjafjallajökull Gosið olli töfum í flugi um heim allan.
Eyjafjallajökull Gosið olli töfum í flugi um heim allan. Fréttablaðið/Anton

 Aska úr Eyjafjallajökli gerði það að verkum að krabbameinslæknir hjá ríkisspítalanum í Northampton í Englandi tafðist erlendis í fríi og uppskurðum hjá spítalanum þurfti að seinka töluvert.

Krabbameinssjúklingum fækkaði um níu prósent á þessu tímabili, ekki vegna lækkunar í tíðni krabbameins, heldur meðal annars vegna þess að þeir þurftu að bíða svo lengi eftir greiningu og meðferð sökum fjarveru lækna. Stjórn spítalans er að vinna í málinu og skipuleggja endurbætur.

- sv



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×