Innlent

Reykjanesbær: Bæjarstjórnin vill taka yfir HSS

MYND/Róbert.

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar er tilbúin til að ganga til viðræðna við stjórnvöld og önnur sveitarfélög á Suðurnesjum um að koma að eða taka yfir rekstur HSS, heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Þetta kemur fram á vef Víkurfrétta en bæjarstjórn fjallaðu um málefni HSS í kvöld. Bæjarstjórnin harmar þá stöðu sem komin er upp í rekstri HSS en segir að með aðkomu að málinu verði tryggt að íbúar Suðurnesja muni njóta almennrar heilbrigðisþjónustu til jafns við aðra landsmenn.

Í bókun bæjarstjórnar sem samþykkt var samhljóða á fundinum segir nauðsynlegt „að tryggt sé að þjónusta skurðstofa verði áfram rekin í þágu íbúa, fyrir fæðandi mæður jafnt sem aðra. Skurðstofur HSS hafa í áranna rás bjargað mannslífum."

„Bæjarstjórn Reykjanesbæjar krefst þess og vill leggja sitt af mörkum til þess að nú þegar verði fundin lausn á þeim vandamálum sem HSS hefur undanfarin ár átt við að etja og að bundin verði endir á þá óvissu sem nú ríkir. Hún er óásættanleg, hvort heldur sé litið til starfsmanna sem nú þurfa að taka við uppsögnum með tilheyrandi vanlíðan, eða þeirra sem boðuðu skerðingar á þjónustu sem íbúar á Suðurnesjum standa nú gagnvart. Um það er samstaða í bæjarstjórn Reykjanesbæjar", segir ennfremur í bókuninni að því er fram kemur á vef VF.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×