Kosið á ný um stækkun álvers 22. janúar 2010 06:00
Gildi undirskrifta um nýja kosningu um stækkun álvers í Straumsvík hefur verið staðfest og unnið er að undirbúningi kosningarinnar. Óformlegar viðræður hafa átt sér stað á milli rekstraraðilans, Rio Tinto Alcan, og bæjarfélagsins, en formlegra svara er beðið, að sögn Lúðvíks Geirssonar bæjarstjóra í Hafnarfirði. Hann segir mögulega verða kosið um málið samhliða þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave. „Ég hef átt viðræður við Rannveigu Rist, forstjóra álversins, og það liggur fyrir að álverið er að ganga frá sínum skriflegu svörum þessa dagana. Við höfum verið að skoða það í stjórnsýslu bæjarins að hafa það bak við eyrað hvort ekki verði hægt að ganga til kosninga samhliða þjóðaratkvæðagreiðslu 6. mars." Lúðvík segir ákvörðun þar um þurfa að liggja fyrir fjórum vikum fyrir kosninguna og líklega skýrist hún á bæjarstjórnarfundi sem verður í næstu viku. Síðast var kosið um stækkun árið 2007 og var hún þá felld. Lúðvík segir að kosningin muni snúast um hvort auglýsa eigi skipulagstillögu, sem geri ráð fyrir stækkun álversins, og leita eftir formlegum athugasemdum til að geta afgreitt hana. „Málið snýst um ferli skipulagsmálsins." Ákveðið hefur verið að ráðast í fyrri hluta endurbóta álversins með það fyrir augum að nýta megi meira rafmagn en nú er gert. Rannveig Rist, forstjóri Alcan á Íslandi, segir viðræður við Landsvirkjun um endurnýjaðan raforkusamning, auk viðbótarorku, á lokastigi. Sú orka muni koma úr Búðarhálsvirkjun. Um er að ræða fjárfestingu fyrir rúmar 100 milljónir dala í þessum áfanga stækkunarinnar, eða tæpa 13 milljarða króna. Alls fara um 330 milljónir dala í allt straumhækkunarverkefnið. Framleiðslugeta eykst í kjölfarið um 40 þúsund tonn, fer úr 178 þúsund tonnum í 218 þúsund tonn á ári.- kóp, óká
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Innlent Fleiri fréttir Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Sjá meira