Orkan og fiskurinn 9. mars 2010 06:00 Mikil áhersla hefur á liðnum árum verið á að koma umhverfisvænu raforkunni okkar í verð og enn virðist það vera að áliti margra helsta leið þjóðarinnar í gegnum kreppuna. Á þessu eru þó ýmsar hliðar sem ástæða er til að velta upp og taka til umræðu. Fiskurinn fangafæðiÁ árum áður gengu fiskveiðar hér við land út á að ná í sem mest magn fisks. Síðutogarar báru að landi allt að 10 daga gamlan ísaðan fisk og stór hluti vertíðarbáta landaði oftast 2-4 nátta netafiski sem var tekinn úr mikilvægasta hluta hrygningarstofns þorsksins. Mikið af þessum afla myndi í dag ekki vera talinn boðlegur til manneldis, enda var hans lítið neytt af okkur sjálfum. Sumt af þessum fiski var hert í skreið eða verkað í salt en stærstur hluti aflans var unninn í frystar „blokkir" fyrir Bandaríkjamarkað. Þar var hann þíddur upp og honum velt uppúr fitu og brauðraspi og seldur í fangelsi og skólamötuneyti. Var okkur hér heima talin trú um að mjög gott verð fengist fyrir þessa „gæðavöru" á bandarískum neytendamarkaði. Fyrir löngu hefur verið horfið frá þessum veiðiáherslum, vinnsluaðferðum og markaðs-setningu á fiskinum okkar enda alþjóðleg eftirspurn eftir honum farið sívaxandi og verð hækkandi. Nú er allt kapp lagt á að koma sem mestu af fiski sem veiddur er hér við land á dýrustu markaði heims hvort sem það er í Evrópu, Ameríku eða Asíu. Gæðin og ferskleikinn eru sett í fyrirrúm til að sem hæst verð fáist og magnið skiptir minna máli. Gæðaorka á gjafverðiAllt fram undir síðustu aldamót var orka í heiminum tiltölulega ódýr. Kom það einkum til af því að umhverfiskostnaður af orkuframleiðslu hafði lítið sem ekkert verið metinn auk þess sem orkuframleiðsla var og er enn víða stórlega niðurgreidd af stjórnvöldum. Er þessi niðurgreiðsla í heild talin nema allt að 700 milljörðum Bandaríkjadala á ári. Á síðustu árum hefur hins vegar orkuverð hækkað hratt og má það einkum rekja til aukinnar eftirspurnar á orku og minnkandi framboðs olíu en einnig til loftslagsmála og aukinnar umhverfisvitundar víða um heim. Viðbrögð við þessu hafa m.a. víða verið að leggja áherslu á nýja og endurnýjanlega orkugjafa s.s. vind, sólgeislun og sjávarföll eða umhverfisvænt eldsneyti. Ekkert land í heiminum býr við betri orkuaðstæður en Ísland. Nánast öll innlend orka hér á landi er umhverfisvæn og mengunarlítil og fer um 80% af henni til stóriðju. Þegar skoðað er verð á raforku í Evrópu kemur í ljós að þessi orka okkar er seld á lægsta verði sem fyrirfinnst í álfunni og þótt miklu víðar væri leitað. Raforkuverð til almennings hér er u.þ.b. þriðjungur af því sem það er að jafnaði í ríkjum ESB og í Danmörku kostar rafmagn 4-5 sinnum meira en á Íslandi (1 Evra = 180 kr.). Verðið á raforku til stóriðjunnar er svo enn miklu lægra en það sem almenningur greiðir hér. Ekki er að sjá að lífskjör og samkeppnishæfni þeirra þjóða sem verðleggja orkuna hæst sé lakari en Íslendinga, nema síður sé. Misheppnuð markaðssetning?Svo lengi sem ég man hefur því verið haldið fram hér að engin alþjóðleg eftirspurn væri eftir hinni umhverfisvænu orku hér á landi nema hjá álfyrirtækjum. Þannig væri enginn áhugi hjá öðrum kaupendum en þeim sem gætu helst keypt alla orku hvers og eins risaorkuvers. Þetta er mér umhugsunarefni nú á sama tíma og flestar þjóðir leggja ofuráherslu á að breyta samsetningu orkuframleiðslu sinnar og alþjóðleg fyrirtæki eru nánast á harðahlaupum um allan heiminn í leit að umhverfisvænni orku. Vitað er að álverum fækkar ört í Evrópu, og á Nýja Sjálandi sem er með álíka orkuaðstæður og Ísland er ekki gert ráð fyrir fjölgun álvera næstu áratugi og er þó aðeins eitt álver í landinu. Getur verið að eitthvað sé að í markaðssetningu okkar á orkunni ekki síður en þegar fiskvinnsla í landinu miðaðist við að koma sem mestu af frosnum þorskblokkum á hinn „ómissandi og dýra" Bandaríkjamarkað? Allt hefur sinn tíma og jafnsjálfsagt og það var að reisa virkjanir við Búrfell og Sigöldu í tengslum við álversbyggingar er kominn tími á að hverfa frá orkumagnsstefnunni yfir í orkugæðastefnuna. Flestar þjóðir sem við viljum bera okkur saman við, t.d. Norðurlönd, ætla sér að byggja efnahagsframfarir og hagvöxt næstu áratuga á sjálfbærni í nýtingu auðlinda, minni losun gróðurhúsalofttegunda og minni orkunotkun. Við hljótum að eiga meiri samleið með þessum grönnum okkar en þeim þjóðum sem enn þurfa að reiða sig á ódýra hráefnis-vinnslu og ofnýtingu takmarkaðra náttúruauðlinda. Við höfum mótað þá stefnu að selja takmarkað magn af góðum fiski okkar eins dýrt og kostur er. Sama hefur a.m.k. að hluta til verið uppi á teningnum þegar um ferðaþjónustuna er að ræða. Við viljum frekar fá færri ferðamenn sem eyða miklu en fleiri sem eyða litlu. Við eigum takmarkaðar auðlindir á landi og í sjó og eigum að selja þær dýrt. Um leið þurfum við að tryggja á þeim eignarhald þjóðarinnar, sjálfbærni þeirra og gæði. Orkan okkar er þar ekki undanskilin. Höfundur er veðurfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Sanna er Zohran Mamdani Reykjavíkur Alfreð Sturla Böðvarsson Skoðun Hvar á láglaunafólk að búa í Reykjavík? Ari Edwald Skoðun Halldór 02.05.2026 Halldór Allt frítt í Garðabæ, eða ábyrgur rekstur ? Lárus Guðmundsson Skoðun Ætti Ísland að taka þátt í PISA? Maren Davíðsdóttir Skoðun Tekjutengjum frístundastyrkinn Sandra Hlín Guðmundsdóttir, Þorvaldur Davíð Kristjánsson Skoðun Vélarnar ræstar út í skurð Bryndís Haraldsdóttir Skoðun Eldri borgarar í Hveragerði eiga meira skilið Ingibjörg Sigmundsdóttir ,Þorsteinn Hjartarson Skoðun Alþjóðadagur hryggbólgusjúkdóma: Ekki bara bakverkir Jóhann Pétur Guðvarðarson Skoðun Skoðun Skoðun Eru verkalýðsfélög úrelt eða bara óþægileg sumum? Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Tímaskekkjan er ekki verkalýðshreyfingin Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Allt frítt í Garðabæ, eða ábyrgur rekstur ? Lárus Guðmundsson skrifar Skoðun Eigum við að forgangsraða börnunum okkar? Ester Halldórsdóttir skrifar Skoðun Ætti Ísland að taka þátt í PISA? Maren Davíðsdóttir skrifar Skoðun Betri heilsa – betri Kópavogur Arnar Grétarsson skrifar Skoðun Vélarnar ræstar út í skurð Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Að lifa, þrátt fyrir brotna odda Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Hvar á láglaunafólk að búa í Reykjavík? Ari Edwald skrifar Skoðun Við klippum ekki borða! Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Eldri borgarar í Hveragerði eiga meira skilið Ingibjörg Sigmundsdóttir ,Þorsteinn Hjartarson skrifar Skoðun Tekjutengjum frístundastyrkinn Sandra Hlín Guðmundsdóttir, Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur hryggbólgusjúkdóma: Ekki bara bakverkir Jóhann Pétur Guðvarðarson skrifar Skoðun Loftslagsmál snúast um jöfnuð og lífsgæði Skúli Helgason skrifar Skoðun Sanna er Zohran Mamdani Reykjavíkur Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar Skoðun Eru hagsmunir Vestmannaeyja einskins virði? Daði Pálsson skrifar Skoðun Langt frá hátekjulistanum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Hugum að lífsgæðum - höfnum ofurþéttingu skrifar Skoðun Borgin sem hætti að hlusta skrifar Skoðun Virðing, virkni og góð lífsgæði alla ævi Ellý Tómasdóttir,Ólafía Ingólfsdóttir skrifar Skoðun 414 ástæður til að gera betur Anna Sigríður Hafliðadóttir skrifar Skoðun Barátta sem skiptir sköpum Svanfríður Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Verkalýðsbarátta okkar daga Jónas Már Torfason skrifar Skoðun 1. maí: Sóknarfæri í jafnrétti eða skref aftur á bak? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Styrkur okkar er velferð allra Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar Skoðun Leyfist Íslendingum að stjórna sínum eigin málum? Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Fjörður fyrir fólk Árni Stefán Guðjónson skrifar Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar Skoðun Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Eldri borgarar í Hveragerði eiga meira skilið Ingibjörg Sigmundsdóttir ,Þorsteinn Hjartarson skrifar
Skoðun Tekjutengjum frístundastyrkinn Sandra Hlín Guðmundsdóttir, Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar
Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar