Davíð Stefánsson: „Ég er bara venjulegur maður / og yfirleitt sæll og glaður ... “ Davíð Stefánsson skrifar 27. maí 2010 11:48 Titill þessarar greinar er tilvitnun í ógleymanlegan söngtexta Helga, persónulega trúbadorsins, úr sjónvarpsþáttunum Fóstbræðrum sem ég held mikið upp á. Ég nota frasann sem titil vegna þess að undanfarna daga hef ég undarlega oft þurft að svara því til að víst sé ég venjulegur maður. Fyrir rúmu ári ákvað ég formlega að taka til starfa fyrir þann stjórnmálaflokk sem stendur mér næst í hugmyndafræði - Vinstrihreyfinguna-grænt framboð. Ég gerði það á þeim forsendum að ég hefði eitthvað fram að færa sem gæti gagnast samfélaginu, ég vildi bjóða mig fram til þjónustu. Ég bauð mig fram sem venjulegur maður sem hafði fengið nóg. Núna, hins vegar, dugir þetta ekki lengur til. Núna, þegar búið er að tala niður í svaðið allt sem heitir skipulagt stjórnmálastarf, er búið að setja alla sem starfa innan stjórnmálaflokka í einn og sama hrærigrautinn. Tala um þá sem flokksdindla. Tala um þá sem „stjórnmálastétt". Tala um þá sem valdagíruga. Alla. Og það er frekar pirrandi, satt best að segja, jafnvel þótt það sé að nokkru leyti skiljanlegt í ljósi hegðunar vissra flokka undanfarin ár.Hvar er „venjulegt fólk" í framboði? Þangað til fyrir nokkrum árum var Sóley Tómasdóttir „venjuleg kona" sem vann hjá ÍTR. Þangað til fyrir nokkrum árum var Þorleifur Gunnlaugsson „venjulegur" dúklagningarmaður. Líf Magneudóttir er ennþá „venjuleg" kona sem vinnur við vefstjórn. Elín Sigurðardóttir er „venjulegur" verkefnastjóri hjá Klúbbnum Geysi. Hermann Valsson er „venjulegur" íþróttakennari. Sjálfur er ég ósköp „venjulegur" vitleysingur sem lærði bókmenntafræði fyrir nokkrum árum og vinn á leikskóla, ásamt því að ritstýra, prófarkalesa, kenna skapandi skrif og skrifa námsefni. Við sem skipum efstu sætin á lista VG fyrir komandi kosningar erum venjulegt fólk sem hefur óvenjumikinn áhuga á samfélaginu og stjórnmálum. Við erum ekki spillt. Við erum ekki heilaþvegin af flokksforystunni - við mótum þvert á móti stefnu VG með þrotlausu starfi og endalausum fundum. Við bjóðum okkur ekki fram vegna fríðinda eða launa - við bjóðum okkur fram vegna þess að við trúum því að íslenskt samfélag þurfi að byggja á félagshyggju, umhverfisvernd og femínisma. Það kann að vera að innan allra flokka finnist vitleysingar sem eru reknir áfram af annarlegum hvötum. Það er líklega óhjákvæmilegt að slíkt hendi í stórum félagsskap.En að halda því fram að „venjulega fólkið" sé hvergi að finna innan flokkakerfisins er mikil og varasöm einföldun. Davíð Stefánsson 5. sæti á lista VG til borgarstjórnar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið „Eruð þið sammála lausagöngu katta?“ Sighvatur Björgvinsson Skoðun Hverjir borga leikskólann í Kópavogi? Örn Arnarson Skoðun Fimm staðreyndir fyrir Gunnþór Ingvason Arnar Þór Ingólfsson Skoðun Hvernig meðhöndlum við vanda sem ekki má tala um? Skaðaminnkandi nálgun í fangelsum Margrét Dís Yeoman Skoðun Tökum samtalið Gunnþór Ingvason Skoðun Ferðaleiðsögn í skjóli ábyrgðar – tími til kominn að endurhugsa nálgunina Guðmundur Björnsson Skoðun Á flandri í klandri Jens Garðar Helgason Skoðun „Skömmin þín“ Jokka G. Birnudóttir Skoðun Þegar illfygli leiðir stórmennskubrjálæðing Ole Anton Bieltvedt Skoðun Réttlæti fyrir þjóðina, framfarir fyrir landsbyggðina Guðmundur Ari Sigurjónson Skoðun Skoðun Skoðun Þegar óttinn er ekki sannur Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Fimm staðreyndir fyrir Gunnþór Ingvason Arnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Réttlæti byggir ekki á rangfærslum – svar við málflutningi þingflokksformanns Samfylkingar um veiðigjaldafrumvarpið Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Björgun hvala og orðræðan sem máli skiptir Valgerður Árnadóttir,Stefán Yngvi Pétursson,Rósa Líf Darradóttir,Anahita S. Babaei skrifar Skoðun Ferðaleiðsögn í skjóli ábyrgðar – tími til kominn að endurhugsa nálgunina Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Á flandri í klandri Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Átak til að stytta biðlista barna eftir sérfræðiaðstoð Helga Þórðardóttir skrifar Skoðun Hverjir borga leikskólann í Kópavogi? Örn Arnarson skrifar Skoðun Tölvupóstar fjórðu iðnbyltingarinnar Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun „Skömmin þín“ Jokka G. Birnudóttir skrifar Skoðun Tökum samtalið Gunnþór Ingvason skrifar Skoðun „Eruð þið sammála lausagöngu katta?“ Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Réttlæti fyrir þjóðina, framfarir fyrir landsbyggðina Guðmundur Ari Sigurjónson skrifar Skoðun Hvernig meðhöndlum við vanda sem ekki má tala um? Skaðaminnkandi nálgun í fangelsum Margrét Dís Yeoman skrifar Skoðun Stuðningur við nýsköpun í menntun: Leið að betra mati Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar illfygli leiðir stórmennskubrjálæðing Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Afruglari Þórður Björn Sigurðsson skrifar Skoðun Þjóðkirkja á réttri leið Þórður Guðmundsson skrifar Skoðun Staðreyndir um einfaldara regluverk Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar Skoðun Við þurfum hagkvæmu virkjunarkostina Gunnar Guðni Tómasson skrifar Skoðun Falin tækifæri til náms Heiða Ingimarsdóttir skrifar Skoðun Gervigreind í námi: 5 lykilskref fyrir öryggi nemenda Björgmundur Guðmundsson skrifar Skoðun Grein til stuðnings Söngskóla Sigurðar Demetz Sveinn Dúa Hjörleifsson,Eyrún Unnarsdóttir,Elmar GIlbertsson,Álfheiður Guðmundsdóttir,Kristján Jóhannesson skrifar Skoðun „Jákvæð viðbrögð“ um veiðigjaldið? Heimir Örn Árnason skrifar Skoðun Skattgreiðendur látnir borga brúsann Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Nokkur orð um Kúbudeiluna og viðskiptabannið Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Ráðherrar með reiknivél og leyndarhyggju Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Gróf misbeiting illa fengins valds Örn Sigurðsson skrifar Skoðun Að sækja gullið (okkar) grein 2 Þröstur Friðfinnsson skrifar Skoðun Það verða aðrir þjóðhátíðardagar fyrir okkur en dagar Palestínumanna eru taldir Davíð Aron Routley skrifar Sjá meira
Titill þessarar greinar er tilvitnun í ógleymanlegan söngtexta Helga, persónulega trúbadorsins, úr sjónvarpsþáttunum Fóstbræðrum sem ég held mikið upp á. Ég nota frasann sem titil vegna þess að undanfarna daga hef ég undarlega oft þurft að svara því til að víst sé ég venjulegur maður. Fyrir rúmu ári ákvað ég formlega að taka til starfa fyrir þann stjórnmálaflokk sem stendur mér næst í hugmyndafræði - Vinstrihreyfinguna-grænt framboð. Ég gerði það á þeim forsendum að ég hefði eitthvað fram að færa sem gæti gagnast samfélaginu, ég vildi bjóða mig fram til þjónustu. Ég bauð mig fram sem venjulegur maður sem hafði fengið nóg. Núna, hins vegar, dugir þetta ekki lengur til. Núna, þegar búið er að tala niður í svaðið allt sem heitir skipulagt stjórnmálastarf, er búið að setja alla sem starfa innan stjórnmálaflokka í einn og sama hrærigrautinn. Tala um þá sem flokksdindla. Tala um þá sem „stjórnmálastétt". Tala um þá sem valdagíruga. Alla. Og það er frekar pirrandi, satt best að segja, jafnvel þótt það sé að nokkru leyti skiljanlegt í ljósi hegðunar vissra flokka undanfarin ár.Hvar er „venjulegt fólk" í framboði? Þangað til fyrir nokkrum árum var Sóley Tómasdóttir „venjuleg kona" sem vann hjá ÍTR. Þangað til fyrir nokkrum árum var Þorleifur Gunnlaugsson „venjulegur" dúklagningarmaður. Líf Magneudóttir er ennþá „venjuleg" kona sem vinnur við vefstjórn. Elín Sigurðardóttir er „venjulegur" verkefnastjóri hjá Klúbbnum Geysi. Hermann Valsson er „venjulegur" íþróttakennari. Sjálfur er ég ósköp „venjulegur" vitleysingur sem lærði bókmenntafræði fyrir nokkrum árum og vinn á leikskóla, ásamt því að ritstýra, prófarkalesa, kenna skapandi skrif og skrifa námsefni. Við sem skipum efstu sætin á lista VG fyrir komandi kosningar erum venjulegt fólk sem hefur óvenjumikinn áhuga á samfélaginu og stjórnmálum. Við erum ekki spillt. Við erum ekki heilaþvegin af flokksforystunni - við mótum þvert á móti stefnu VG með þrotlausu starfi og endalausum fundum. Við bjóðum okkur ekki fram vegna fríðinda eða launa - við bjóðum okkur fram vegna þess að við trúum því að íslenskt samfélag þurfi að byggja á félagshyggju, umhverfisvernd og femínisma. Það kann að vera að innan allra flokka finnist vitleysingar sem eru reknir áfram af annarlegum hvötum. Það er líklega óhjákvæmilegt að slíkt hendi í stórum félagsskap.En að halda því fram að „venjulega fólkið" sé hvergi að finna innan flokkakerfisins er mikil og varasöm einföldun. Davíð Stefánsson 5. sæti á lista VG til borgarstjórnar í Reykjavík.
Hvernig meðhöndlum við vanda sem ekki má tala um? Skaðaminnkandi nálgun í fangelsum Margrét Dís Yeoman Skoðun
Ferðaleiðsögn í skjóli ábyrgðar – tími til kominn að endurhugsa nálgunina Guðmundur Björnsson Skoðun
Skoðun Réttlæti byggir ekki á rangfærslum – svar við málflutningi þingflokksformanns Samfylkingar um veiðigjaldafrumvarpið Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Björgun hvala og orðræðan sem máli skiptir Valgerður Árnadóttir,Stefán Yngvi Pétursson,Rósa Líf Darradóttir,Anahita S. Babaei skrifar
Skoðun Ferðaleiðsögn í skjóli ábyrgðar – tími til kominn að endurhugsa nálgunina Guðmundur Björnsson skrifar
Skoðun Hvernig meðhöndlum við vanda sem ekki má tala um? Skaðaminnkandi nálgun í fangelsum Margrét Dís Yeoman skrifar
Skoðun Grein til stuðnings Söngskóla Sigurðar Demetz Sveinn Dúa Hjörleifsson,Eyrún Unnarsdóttir,Elmar GIlbertsson,Álfheiður Guðmundsdóttir,Kristján Jóhannesson skrifar
Skoðun Það verða aðrir þjóðhátíðardagar fyrir okkur en dagar Palestínumanna eru taldir Davíð Aron Routley skrifar
Hvernig meðhöndlum við vanda sem ekki má tala um? Skaðaminnkandi nálgun í fangelsum Margrét Dís Yeoman Skoðun
Ferðaleiðsögn í skjóli ábyrgðar – tími til kominn að endurhugsa nálgunina Guðmundur Björnsson Skoðun