Fjárfesting HS Orku upp á tvo milljarða í uppnámi 29. júlí 2010 05:00 HS Orka sótti um leyfi til að stækka Reykjanesvirkjun í október. Orkustofnun er enn að fjalla um umsóknina, sem þykir benda til þess að stofnunin telji einhverja annmarka á að samþykkja hana.Fréttablaðið/Valli
Tveggja milljarða króna fjárfesting HS Orku í gufuhverfli er í uppnámi vegna ákvörðunar stjórnvalda um að koma fyrirtækjum sem nýta orkuauðlindir í meirihlutaeigu ríkisins. HS Orka tók nýverið við nýjum gufuhverfli sem áformað er að nýta fáist leyfi til að stækka Reykjanesvirkjun. Júlíus Jónasson, forstjóri HS Orku, segir að fáist leyfi til að stækka virkjunina þurfi að bora sex til átta borholur á virkjanasvæðinu til að nýta hverfilinn. Þau áform eru í uppnámi fái kaup kanadíska orkufyrirtækisins Magma Energy á HS Orku ekki fram að ganga, segir Júlíus. Hann segir að nýir eigendur hafi ætlað að leggja eigið fé í að stækka virkjunina og taka lán til viðbótar. Nú séu þau áform í uppnámi vegna ákvörðunar stjórnvalda um að opinberir aðilar eigi alltaf að lágmarki helming hlutafjár í orkufyrirtækjum. Júlíus segir dagljóst að þeir tímar séu liðnir þegar hægt hafi verið að fjármagna virkjanir að fullu með lánum. Fáist ekki eigið fé sé því óvíst um framtíð áforma um að stækka Reykjanesvirkjun. Júlíus segir það ekki mistök að hafa keypt gufuhverfilinn, sem framleiddur er hjá Fuji í Japan, og kostaði um tvo milljarða króna. Hverfillinn var pantaður fyrir um tveimur árum, og er sérsmíðaður fyrir jarðhitasvæðið á Suðurnesjum. Hefði HS Orka viljað hætta við kaupin hefði félagið þurft að greiða Fuji hundruð milljóna fyrir ekki neitt, segir Júlíus. Því hafi verið talið rétt að taka við hverflinum, og hefur hann staðið á gólfi stöðvarhúss Reykjanesvirkjunar frá því snemma í júní. „Við vonum að tapið verði minna af því að taka þetta inn og bera vextina,“ segir Júlíus. HS Orka sótti um leyfi til að stækka Reykjanesvirkjun í október 2009. Kristinn Einarsson, yfirverkefnisstjóri hjá Orkustofnun, segir umsóknina enn í vinnslu, óskað hafi verið eftir frekari gögnum, sem berist vonandi fljótlega. Heimildir Fréttablaðsins herma að dráttur á afgreiðslu umsóknarinnar sýni að stofnunin telji ekki rétt að samþykkja stækkunina miðað við fram komin gögn. Júlíus segir að boruð hafi verið ný tilraunahola í sumar, og fljótlega verði hægt að mæla hversu mikla orku megi fá úr henni. Hann segir sérfræðinga Orkustofnunar hafa áhyggjur af því að svæðið beri ekki fleiri borholur, en nýja holan muni vonandi sýna fram á að þær áhyggjur séu óþarfar. Hverju það skilar er annað mál, þegar alls óvíst er hvort fjármagn fæst í frekari framkvæmdir, segir Júlíus. Nýi hverfillinn getur framleitt um 50 megavött. Bora þyrfti sex til átta holur til viðbótar til að nýta hann að fullu.brjann@frettabladid.is
Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Innlent Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Innlent Áfall fyrir bæjarfélagið Innlent Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Fleiri fréttir Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Áfall fyrir bæjarfélagið „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Sjá meira