Flutt af Kleppi eftir áratugi 26. febrúar 2010 05:30 Kleppur. Á þeim rúmu hundrað árum sem liðin eru frá því að spítalinn var reistur hefur afstaða til geðheilbrigðismála breyst. fréttablaðið/vilhelm
Deild 14 á Kleppi verður lokað á vordögum. Deildin er sérhæfð meðferðar- og endurhæfingargeðdeild fyrir fólk með langvinna geðsjúkdóma og alvarlega atferlistruflun. Tólf dvelja á deildinni og hafa sumir verið þar um áratuga bil. Flestum hefur verið fundin ný búseta. Um helmingur hópsins er eldra fólk sem á rétt á vistunarmati og dvöl á hjúkrunarheimili. Hluti fær heimili á vegum Straumhvarfaverkefnisins svonefnda en óvíst er um úrræði fyrir fjóra. Þeir stríða við flókna blöndu af þroskaskerðingu, geðsjúkdómi og hegðunartruflunum. Vonir standa til að framtíðarbúseta tveggja þeirra leysist á næstu vikum en staða hinna tveggja er erfiðari viðfangs og krefst flóknari úrlausna. Páll Matthíasson, framkvæmdastjóri geðsviðs Landspítalans, segir langtímadvöl og jafnvel fasta búsetu á sjúkrahúsum hvorki samræmast nútímaheilbrigðisþjónustu né mannúðarsjónarmiðum. Tólf prósenta sparnaðarkrafa á tveimur árum hraði þó lokun deildarinnar. Beinn rekstrarkostnaður deildar 14 nemur 170 milljónum króna á ári. „Það er ekki hlutverk geðsviðs Landspítalans að sinna búsetuúrræðum fatlaðs fólks,“ segir Páll og bendir á að þessir tólf vistmenn séu í raun þeir síðustu sem eftir eru af því gamla Kleppssamfélagi sem í eina tíð taldi hundruð manna. „Fólk sem er með geðsjúkdóm en á ekki von um bata á ekki að vera á sjúkrahúsi. Það á rétt á að vera búið heimili.“ Páll segir að yfirvofandi breytingum fylgi kvíði og óöryggi en þrátt fyrir það sé ómögulegt að halda því fram að fólkinu sé betur fyrirkomið á Kleppi. Sveinn Magnússon, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, kveðst einlægur fylgismaður þeirrar stefnu að fólki séu búin heimili utan spítala en gagnrýnir að tilkynnt hafi verið um lokun deildarinnar áður en öllum voru fundin ný búseta. Alls 27 starfsmönnum deildarinnar hefur verið sagt upp og taka uppsagnirnar gildi 1. maí. Páll Matthíasson segir markmið stjórnenda að allir fái ný störf innan Landspítalans og telur hann vonir um það góðar. Deild 14 er til húsa á 1. hæð gamla Kleppsspítalans inni við Sund. Að sögn Páls er ástand húsnæðisins ágætt og verður önnur deild í verra húsnæði flutt þangað. - bþs
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Sjá meira