Sunnudagaskólinn kemur út á mynddiski fyrir jólin 30. ágúst 2010 05:00 Hafdís og Klemmi lenda í hinum ýmsu ævintýrum á mynddisknum sem Guðni Már Harðarson og félagar eru með í undirbúningi. <B>Nebbi</B> brúðufréttamaður kemur einnig við sögu. mynd/haraldur guðjónsson „
Ég er rosalega stoltur af þessu verkefni,“ segir Guðni Már Harðarson, prestur í Lindakirkju. Undanfarna mánuði hafa Guðni Már og Guðmundur Karl Brynjarsson, prestar í Lindakirkju ásamt Þorleifi Einarssyni, leiklistarnema og sunnudagaskólakennara auk fleiri reyndra sunnudagaskólakennara þjóðkirkjunnar, unnið við handritaskrif að sunnudagaskólaefni fyrir börn. Afraksturinn kemur út á DVD-mynddiski í nóvember. Í aðalhlutverkum eru þau Hafdís og Klemmi sem lenda í ýmsum skemmtilegum ævintýrum áður en þau fara í sunnudagaskólann. Leikarinn Jóel Sæmundsson og Hafdís Matsdóttir, sunnudagaskólakennari í Lindakirkju, fara með hlutverk þeirra. „Þetta er mjög stórt verkefni. Það hafa um eitt hundrað manns komið að þessu og við erum búin að vera að taka þetta upp í allt sumar,“ segir Guðni Már. „Við erum búin að leggja mikla vinnu í þetta.“ Diskurinn inniheldur rúmlega hundrað mínútur af efni í fjórum þáttum, tuttugu sunnudagaskólalög í hressilegum búningi, brúður og gamanmál, auk bæna, biblíuversa og fjögurra af þekktustu dæmisögum Krists. Við handritaskrifin var þeirri meginreglu fylgt að hafa efnið grípandi með stuttum og snöggum myndskeiðum eins og barnaefni nútímans er framleitt. Í hverjum þætti er sýndur brúðuþáttur í prúðuleikarastíl sem Þorleifur Einarsson hannaði en brúðurnar koma jafnframt frá sér biblíusögu dagsins á skemmtilegan hátt með fallegum myndum. Með útgáfunni vilja prestarnir koma betur til móts við þann stóra hóp foreldra sem vill kenna börnunum sínum kristin gildi með nútíma aðferðum. „Þetta er gert bæði af þörf og svo man ég að biskup hvatti til þess fyrir einu og hálfu ári í ræðu sinni að kirkjan yrði að fara að gefa út líka á DVD, ekki bara koma boðskap til barnanna í gegnum sunnudagaskólann,“ segir Guðni Már, spenntur fyrir útgáfunni.freyr@frettabladid.is f
Mest lesið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Notch setur glæsihúsið á sölu Leikjavísir Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Tónlist Ofurfyrirsæta blæs nýju lífi í Life-tímaritið Menning Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Menning Fleiri fréttir Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Sjá meira