Góðkunningi Íslendinga slær í gegn í Ölpunum 16. október 2010 13:55 Frá gerð Kárahnjúkavirkjunar í mars 2004. Mynd/karahnjukar.is
Gamall „góðkunningi" Íslendinga gegnir stóru hlutverki við gerð Gotthard-jarðganganna í svissnesku Ölpunum. Þetta er risaborinn TBM-1, en hann var einn þriggja risabora sem boruðu aðrennslisgöng Kárahnjúkavirkjunar, milli Hálslóns og Fljótsdals. Eftir að borinn lauk verkefni sínu á Íslandi var hann fluttur til Sviss til að bora Gotthard-göngin, en alls eru risaborarnir þar fjórir; við að bora tvenn samhliða göng. Þeir slógu einmitt í gegn þar í gær, þegar þeir rufu síðasta haftið, og komust með því í heimsfréttirnar, enda verða Gotthard-göngin lengstu járnbrautargöng í heimi, 57 kílómetra löng. Það var vorið 2004 sem TBM-1 byrjaði að bora í Kárahnjúkum, en samtals boraði hann 15 kílómetra af þeim 50 kílómetrum, sem risaborarnir þrír boruðu hérlendis. Göngin í Kárahnjúkavirkjun eru þó samtals mun lengri, eða 73 kílómetrar, en 23 kílómetrar af þeim voru sprengdir með hefðbundinni aðferð. TBM-1 var fyrsti boranna þriggja sem lauk verkefni sínu hérlendis og var hann fluttur úr landi árið 2007, en síðasti borinn lauk störfum í Kárahnjúkum í apríl 2008. Sveitarstjórnarmenn á Austfjörðum lögðu hart að stjórnvöldum, án árangurs, að halda einum risabornum eftir í landinu til að bora bílagöng enda reyndust afköst þeirra afar mikil. Þannig setti einn boranna heimsmet í Kárahnjúkagöngum þegar hann boraði 115 metra á einum sólarhring.
Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Nálgist neyðarástand Innlent Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Innlent Lentu aftur í óförum Innlent Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Innlent Árásarmaðurinn sextán ára Erlent Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Erlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Sjá meira