Bestu þríleikir sögunnar 30. september 2010 13:15 Þeir bestu Þríleikir eru vinsælt form í Hollywood og eiga jafnan auðvelt með að laða að kvikmyndaáhorfendur. Það þarf hins vegar eitthvað sérstakt til að gera þríleik sem heldur algjörlega í þrjár myndir og það hefur reynst mörgum ákaflega erfitt.
Þríleikir af öllum stærðum og gerðum hafa verið vinsælir beggja vegna Atlantshafsins. Kvikmyndatímaritið Empire fékk lesendur sína til að velja þá bestu og þar kemur kannski fátt á óvart. 1. Hringadrottinssaga: (2001-2003)Actors, from left, Mark Hamill as Luke Skywalker, Carrie Fisher as Princess Leia and Harrison Ford as Han Solo, appear in a scene from Lucasfilm's "Star Wars: Episode IV, A New Hope," in this undated promotional photo. Lucasfilm Ltd. and 20th Century Fox announced Tuesday, Feb. 10, 2004, that the original three "Star Wars" films will be released on DVD on Sept. 21, 2004, in North America. (AP Photo/Lucasfilm, Ltd. & TM) star wars a new hopeÞetta þrekvirki Peters Jackson var í raun einstakur kvikmyndaatburður. Bækur J.R.R Tolkien höfðu átt miklum vinsældum að fagna og hörðustu fylgjendur bókanna leyfðu sér að efast um að nokkur kvikmyndagerðarmaður gæti fangað ævintýraheiminn og andrúmsloftið sem einkennir þessi meistaraverk Tolkien. Jackson tókst það hins vegar, myndirnar þrjár eru augnakonfekt sem eiga vafalítið eftir að lifa í hugum og hjörtum áhorfenda.Jackson tókst meira að segja að velja réttu leikarana; Viggo Mortensen smellpassaði í hlutverk Aragorn og danska ofurstjarnan bar uppi myndina. Síðasta myndin, Hilmir snýr aftur, hlaut ellefu Óskarsverðlaun og er því ein af þremur sigursælustu myndum sögunnar á þeirri verðlaunahátíð.2. Stjörnustríð (1977-1983)Back To The Future Year: 1985 Director: Robert Zemeckis Christopher Lloyd Michael J.Fox Back to the Future Michael J. FoxAlec Guinness hataði Stjörnustríð, henti öllum aðdáendabréfum án þess að opna þau og krafðist þess að Obi-Wan Kenobi yrði drepinn sem fyrst. Guinness hefur sennilega ekki órað fyrir því hver áhrif Stjörnustríðs-þríleikur George Lucas myndi hafa á poppmenningu 20. og 21. aldarinnar með endalausum tilvísunum í kvikmyndum sem hafa ekkert með geimstríð að gera. Þrátt fyrir að flestir hefðu talið að það væri nánast ekki hægt að betrumbæta fyrstu myndina þá tókst það bæði hjá Irvin Kershner og Richard Marquand. Sorglegust eru kannski örlög Carrie Fisher og Marks Hamil en Harrison Ford getur vafalítið vel við unað. 3. Aftur til framtíðar (1985-1990)Toy Story 3Delorean-bifreiðin sem þeytti Marty McFly fram og aftur í tíma og rúmi hefur eflaust birst í draumum sérhvers manns sem sá Back to the Future-þríleikinn. Fyrsta myndin, þar sem Marty fer aftur til ársins 1955, er frábær gamanmynd með ógleymanlegum atriðum. Hinar tvær, þar sem Marty ferðast til framtíðarinnar og reynir að bjarga syni sínum og svo kúrekamyndin, náðu ekki alveg að fylgja frummyndinni eftir en lifa engu síður ágætis lífi. 4. Leikfangasaga (1995 - 2010)**FILE** Bonasera, portrayed by Frank Puglia, asks Don Vito Corleone, portrayed by Marlon Brando, right, for a favor in a scene from the 1972 movie "The Godfather". Brando, who revolutionized American acting with his Method performances in "Streetcar Named Desire" and "On the Waterfront" and went on to create the iconic characterization of Corleone in "The Godfather," has died, his lawyer said Friday, July 2, 2004. He was 80. (AP Photo/Paramount Pictures ) Marlon Brando, GodfatherBósi Ljósár og Viddi kúreki. Ef það er til eitthvað barn sem er fætt eftir 1990 og hefur ekki átt sitt Bósa- eða Vidda-tímabil þá hefur viðkomandi barni verið miskunnarlaust haldið frá sjónvarpi og afþreyingarmenningu. Teiknimyndirnar eru einstaklega velheppnaðar, fullar af leiftrandi kímni og frábærum söguþræði ásamt með uppbyggilegri fræðslu handa smáfólkinu um vináttu. Það besta við Leikfangasögu er kannski að myndirnar forðast pólitíska rétthugsun í lengstu lög. 5. Guðfaðirinn (1972-1990)Ef um væri að ræða keppni í dúettum hefði Francis Ford Coppola staðið uppi með pálmann í höndunum. Því fyrstu tvær myndirnar eru meistarastykki af guðs náð. Coppola datt hins vegar í hug að það væri sniðugt að fá dóttur sína, Sofiu, og Andy Garcia til að leika par í þriðju myndinni og láta Al Pacino vera svo veikan að áhorfendur heyrðu varla í honum. Þessar hugmyndir sprungu rækilega í andlitið á Coppola og gerðu það að verkum að Guðföður-þríleikurinn er í raun bara tvær myndir. Flestir hafa afneitað þeirri þriðju.
Lífið Mest lesið „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Lífið Emma Roberts gengin í það heilaga Lífið Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Lífið Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Lífið Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Lífið Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Menning Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Lífið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Lífið Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Lífið Beach Boys með nýtt lag Tónlist Fleiri fréttir Emma Roberts gengin í það heilaga „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Sjá meira