Börn Gunnars í Krossinum: Telja ásakanirnar uppspuna 27. nóvember 2010 18:28 Börn Gunnars í Krossinum hafa sent frá sér yfirlýsingu.
Börn Gunnars Þorsteinssonar í Krossinum hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þau segja að vegið sé að æru og heiðri föður þeirra með óvægnum hætti. „Pabbi okkar er kærleiksríkur maður sem vill öllum vel." Þau segja jafnframt vita að faðir þeirra sé saklaus og biðla til fólks að fara varlega í sleggjudóma. „Þessi ásökun á pabba okkar er skelfileg því að bæði okkur og honum þykir það mesta viðurstyggð þegar brotið er á ungum stúlkum eða börnum." Hægt er að lesa yfirlýsinguna hér fyrir neðan: Við undirrituð, börn Gunnar Þorsteinssonar í Krossinum, viljum senda frá okkur þessa yfirlýsingu til fjölmiðla á þessum erfiða tíma í okkar lífi. Við erum öll full af hryggð því undanfarnir dagar hafa verið okkur óbærilega sárir. Því biðjum við fjölmiðla um að sýna okkur skilning og nægt svigrúm til að ná áttum. Einnig biðjum við ykkur að birta ekki myndir af okkur vegna hræðslu um að börn okkar verði einnig fyrir aðkasti. Maður getur varla orða bundist yfir þessum alvarlegu ásökunum á hendur föður okkar sem við teljum að séu uppspuni frá rótum. Með óvægnum hætti er vegið að æru hans og heiðri. Pabbi okkar er kærleiksríkur maður sem vill öllum vel. Hann gekk mágkonum sínum í föðurstað og hefur reynst þeim traustur sem klettur. Ávallt hefur faðmur hans verið opinn fyrir þá sem eiga við sárt að binda og því erum við orðlaus yfir þessum ásökunum. Við vitum öll að pabbi okkar er saklaus og biðlum til fólks að fara varlega í sleggjudóma. Þessi ásökun á pabba okkar er skelfileg því að bæði okkur og honum þykir það mesta viðurstyggð þegar brotið er á ungum stúlkum eða börnum. Megi Guð mæta og fyrirgefa þeim sem standa að svona herskári ófrægingarherferð. Virðingarfyllst: Guðni Gunnarsson Sigurbjörg Gunnarsdóttir Jóhanna Gunnarsdóttir Gunnar Ingi Gunnarsson
Mest lesið Játa frelsisviptingu og rán en hafna manndrápi Innlent Aldrei kynnst neinum sem harkaði jafnmikið af sér Innlent Tilgangurinn að ná í „easy money“ Innlent Yfirmaður heraflans er á móti hernámi og vill semja Erlent Hættir hjá borgarstjóra og aðstoðar nú ráðherra Innlent Vön því að hringja í fullorðna karlmenn á fölskum forsendum Innlent Betra að borga tryggingarnar en að sitja uppi með allsherjartjón Innlent Hættir sem ritstjóri Kveiks Innlent Persónulegar og átakanlegar lýsingar í ævisögu Giuffre Erlent Vilhjálmur í Smáríkinu ákærður fyrir að selja eina hvítvínsbelju Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vön því að hringja í fullorðna karlmenn á fölskum forsendum Opna Vesturbæjarlaug á morgun en Sundhallargestir þurfa að bíða Tilgangurinn að ná í „easy money“ Jökulhlaupið í rénun Í beinni frá héraðsdómi, unglingadrykkja og áheitakóngur Aldrei kynnst neinum sem harkaði jafnmikið af sér Hættir sem ritstjóri Kveiks Hættir hjá borgarstjóra og aðstoðar nú ráðherra Meirihluti hefur áhyggjur af laxastofninum nema í fjörðunum Jóhann tekur við af Gunnari hjá Landssambandi veiðifélaga Skýrslur teknar af tíu börnum undir sex ára á síðustu 20 árum Lögregla kölluð til vegna einstaklinga sem tjölduðu í skógarrjóðri Betra að borga tryggingarnar en að sitja uppi með allsherjartjón Játa frelsisviptingu og rán en hafna manndrápi Metaðsókn og söfnunarmet slegið 13,3 milljarðar frá Íslandi til Úkraínu: Danska leiðin „ein sú besta“ til að styrkja varnir Evrópu Steindór Örn endurkjörinn formaður Hallveigar Það logaði glatt í Bergþórshvoli á Njáluhátíð í Rangárþingi Skiptar skoðanir um stækkun Þjóðleikhússins Myndskeið af rallýslysi, sjálfstæð Úkraína og brennan á Bergþórshvoli Brotið á barni með því að loka það inni í einveruherbergi Leitar kofans sem hvarf í heilu lagi Vestfirðingar fagna í kvöld: „Þetta er bara mjög stórt“ Öll spjót beinast að ÍBR vegna skipulagsleysis og „rugls í ræsingu“ Hlaupið aftur í rénun eftir vöxt í nótt Þrjár líkamsárásir og yfir tuttugu ungmenni í athvarf Hver verður Íslandsmeistari í hrútaþukli? Kraftaverk að ekki fór verr þegar bíll hafnaði ofan á tveimur Akstursíþróttasamfélagið harmi slegið, unglingadrykkja á Menningarnótt og hrútaþukl Evrópusambandið, menntamál, stýrivextir og Gasa í Sprengisandi Sjá meira