Innlent

Kjörsókn þokkaleg í kraganum en dræm í Reykjavík

Í morgun í Laugardalshöll. Mynd/ Pjétur.
Í morgun í Laugardalshöll. Mynd/ Pjétur.

Alls hafa 11117 manns kosið í Reykjavík norðri klukkan þrjú í dag en það gera 25,27 prósent kjörsókn. Á sama tíma höfðu 35,47 kosið í þingkosningunum árið 2009. Alls eru rétt tæplega 44 þúsund kjósendur á kjörskrá í Reykjavík norðri.

Í Reykjavík suður höfðu 12223 kosið fyrir klukkan þrjú í dag. En það gera 27,75 prósent miðað við 36,7 prósent sem kusu í þingkosningum árið 2009.

kjörsókn í Suðvesturkjördæmi klukkan þrjú var 31,7 prósent. Þá höfðu 18791 manns hafa kosið. Í Alþingiskosningum 2009 höfðu 21095 kosið eða 36,2 prósent.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×