Spaugstofan verður í sviðsljósinu í Sjálfstæðu fólki hjá Jóni Ársæli Þórðarsyni næsta sunnudag. Pálmi Gestsson brá sér í gervi Jóns í gær og mátti ekki á milli sjá hvor væri hvað.
„Það var gaman að hitta Jón. Hann kom og spjallaði við okkur hvern í sínu lagi. Svo brá ég mér bara í hans gervi og hann hitti klónið af sér," segir Pálmi Gestsson. „Hann hafði mjög gaman af þessari uppákomu. Ég held hann hafi það yfirleitt enda engir alvöru menn nema það sé hægt að herma eftir þeim eitthvað."
Pálmi hefur túlkað Jón Ársæl með reglulegu millibili í gegnum árin og gert það með miklum sóma eins og honum einum er lagið. Spurður hvort ekki hafi verið löngu kominn tími á að Spaugstofan væri tekin fyrir í Sjálfstæðu fólki kemur hik á Pálma: „Er það ekki að ofgera hlutunum ef við erum að þvælast á öðrum stöðvum."
Fregnir um að Spaugstofan ætli að hætta í vor eru orðum auknar að sögn Pálma. „Þetta er ekkert öðruvísi en það hefur alltaf verið. Það hefur alltaf komið í ljós seint bæði af okkar hálfu og Útvarpsins hvort það væri tilefni til að halda áfram. Það hefur verið þannig í 21 ár," segir hann.
Spurður hvort þeir félagar hafi ekki áhuga á að halda áfram segir Pálmi: „Við höfum verið að kasta því á milli okkar. Á meðan ástandið er svona og fólk vill horfa á okkur og við höfum gaman af þessu erum við alltaf til í að skoða það. En það er engin sáluhjálp fyrir okkur í sjálfu sér. Auðvitað skilur maður að Útvarpið er í kröggum eins og önnur fyrirtæki og það verður að skoða sín mál til að vita hvað það getur tekist á við."
Nokkrir þættir eru eftir af Spaugstofunni á þessu vori. Síðasti þátturinn verður að öllum líkindum sýndur í lok apríl. freyr@frettabladid.is


