17 ára landsliðið vann Tyrki sem enduðu níu inn á vellinum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. september 2010 17:54 Gunnar Guðmundson er landsliðsþjálfari 17 ára landsliðs karla.
Íslenska 17 ára landsliðið vann 2-0 sigur á Tyrkjum í öðrum leik liðsins í undanriðli fyrir EM en riðilinn fer fram á Íslandi. Fylkismaðurnn Hjörtur Hermannsson og Blikinn Oliver Sigurjónsson skoruðu mörk íslenska liðsins en leikið var í Víkinni. Það var miðvörðurinn Hjörtur Hermannsson sem kom Íslandi í 1-0 með marki á 57. mínútu og Oliver Sigurjónsson innsiglaði síðan sigurinn með marki úr vítaspyrnu þegar fjórar mínútur voru komnar fram í uppbótartíma. Oliver fiskaði vítið sjálfur en hann skoraði einnig í fyrsta leiknum á móti Tékkum. Tyrkir enduðu níu inn á vellinum því tveir leikmenn liðsins fengu að líta rauða spjaldið í leiknum, það fyrra fékk Salih Ucan á fyrstu mínútu seinni hálfleiks fyrir brot á Blikanum Árna Vilhjálmssyni og það síðara fékk Okan Deniz á 75. mínútu fyrir brot á Fylkismanninum Ragnari Braga Sveinssyni. Íslendingar töpuðu 2-4 gegn Tékkum í fyrstu umferðinni eftir hörkuleik en Tyrkir lögðu hinsvegar Armena 3-0 að velli í fyrsta leiknum sínum. Tékkar og Armenar gerðu síðan 1-1 jafntefli fyrr í dag.
Íslenski boltinn Mest lesið Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu Íslenski boltinn Aberg með vallarmet og meiddur McIlroy bjargaði sér Golf Formúlu 1 keppnum í Mið-Austurlöndum aflýst Formúla 1 Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Íslenski boltinn Antonelli yngstur til að vera á ráspól í sögu Formúlu 1 Formúla 1 Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ Íslenski boltinn Stappar stálinu í Kinsky og segir leikmönnum að fara ekki að grenja Sport „Gerðum heiðarlega tilraun til að henda þessu frá okkur í restina“ Sport „Ég set blóð, svita og tár í þetta og mér finnst ekkert skemmtilegra“ Sport Haukur og félagar eyðilögðu hátíðarhöld Handbolti Fleiri fréttir Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Flautaði leikinn af þegar FH-ingar komu ekki út í seinni hálfleik Sjá meira