Staðreyndir um launakjör bæjarstjórans í Hveragerði Róbert Hlöðversson skrifar 7. júlí 2010 10:20 Samkvæmt framlögðum ráðningasamningi eru mánaðarlaun bæjarstjóra Hveragerðisbæjar eftirfarandi: Dagvinnulaun 487.498 kr./mán. Föst yfirvinna 72 klst. á mánuði alla mánuði ársins sem gerir 364.536 kr./mán Laun fyrir setu í bæjarstjórn, 66 þús. kr./mán. Bifreiðarstyrkur 1.300 km akstur/mán. alla mánuði ársins gerir u.þ.b. 130.000 kr./mán. Samtals eru því laun og hlunnindi bæjarstjóra Hveragerðisbæjar skv. ráðningarsamningi u.þ.b. 1.050.000 kr./mán. Bæjarfulltrúar A-listans gera ekki athugasemdir við grunnlaun bæjarstjórans. Að greiða honum 72 klst. á mánuði í yfirvinnu eða 864 klst./ár er hins vegar með öllu óásættanlegt og móðgun við aðra starfsmenn bæjarins, sem verða að sætta sig við yfirvinnubann eða að taka út unna yfirvinnu í fríi. Af frádregnu orlofi og almennum frídögum eru u.þ.b. 222 lögbundnir vinnudagar í árinu. Það þýðir að bæjarstjórinn fær greiddar tæplega 4 klst. á dag í fasta yfirvinnu alla virka vinnudaga ársins. Bæjarfulltrúar A-listans telja eðlilegt að laun fyrir setu í bæjarstjórn séu innfalin í þessum yfirvinnugreiðslum, en svo er ekki því bæjarstjóranum eru greiddar 66 þús. kr./mán. aukalega fyrir bæjarstjórnarfundi. Sjálfstæðismenn halda því fram að það sé hagstæðara fyrir Hveragerðisbæ að greiða bæjarstjóra bifreiðastyrk í stað afnota af bifreið sem bærinn rekur. Ekki er hirt um að rökstyðja þessa fullyrðingu. Hafi bæjarstjóri full afnot af bifreið bæjarins reiknast það til hlunninda sem greiða ber tekjuskatt af. Hve mikið honum ber að greiða er háð innkaupsverði bifreiðarinnar. Kjósi bæjarstjóri t.d. að aka um á 8 mkr. jeppa mundi hann þurfa að greiða úr eigin vasa u.þ.b. 90 þús. kr./mán., en helmingi minna fyrir 4 mkr. bíl. Bærinn greiðir hins vegar rekstur og fjármagnskostnað bílsins. Aki bæjarstjóri lítið og kjósi að aka um á dýrum bíl hagnast hann því meira á því að vera á eigin bíl og fá greiddan fastan bifreiðastyrk. Þar sem bifreiðastyrkur er greiddur vegna afnota af eigin bíl í vinnutíma er eðlilegt að deila þessum 15.600 km á ári niður á lögbundna vinnudaga. Sé það gert þarf bæjarstjórinn að aka rúmlega 70 km/dag og fær greitt fyrir það u.þ.b. 7.000 kr. Aki hann á löglegum hraða eyðir hann u.þ.b. klukkustund á dag undir stýri í þágu bæjarins. Það er mikill akstur í einu landminnsta sveitarfélagi landsins. Bæjarfulltrúar A-listans telja svona samningagerð skrípaleik. Bæjarfélaginu ber einungis að greiða fyrir þá yfirvinnu sem unnin er og fyrir akstur í þágu bæjarins samkvæmt framlagðri akstursdagbók. Þetta eru þær reglur sem aðrir starfsmenn bæjarins þurfa að lúta og sjálfgefið að sama gildi um bæjarstjórann. Róbert Hlöðversson oddviti A-listans í Hveragerði. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Óvirðing við lýðræðislegar hefðir, gegn stjórnarskrá, trúnaðarbrot gagnvart kjósendum Arnar Þór Jónsson Skoðun Lík brennd í Grafarvogi Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Þeir sem verja stórútgerðina – og heimsvaldastefnuna Karl Héðinn Kristjánsson Skoðun Gervigreindin beisluð Hanna Kristín Skaftadóttir,Helga Sigrún Harðardóttir Skoðun Óboðlegt ástand á Landspítala – okkar sjónarhorn Hildur Jónsdóttir,Einar Freyr Ingason,Þórir Bergsson Skoðun Betri vegur til Þorlákshafnar er samkeppnismál Ólafur Stephensen Skoðun Elsku Íslendingar, styðjum saman Grindavík Dagmar Valsdóttir Skoðun Á jaðrinum með Jesú Daníel Ágúst Gautason Skoðun Er handahlaup valdeflandi? Davíð Már Sigurðsson Skoðun Orðhengilsháttur og lygar Elín Erna Steinarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Baráttan um kjör eldra fólks Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Menntamál íslenskra grunnskólabarna hafa verið til umfjöllunar – sem er vel. Miklu verra er tilefnið Karen Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Elsku Íslendingar, styðjum saman Grindavík Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Svigrúm Eydísar á fölskum grunni Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Betri vegur til Þorlákshafnar er samkeppnismál Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Óvirðing við lýðræðislegar hefðir, gegn stjórnarskrá, trúnaðarbrot gagnvart kjósendum Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Lík brennd í Grafarvogi Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Er handahlaup valdeflandi? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Á jaðrinum með Jesú Daníel Ágúst Gautason skrifar Skoðun Þeir sem verja stórútgerðina – og heimsvaldastefnuna Karl Héðinn Kristjánsson skrifar Skoðun Gervigreindin beisluð Hanna Kristín Skaftadóttir,Helga Sigrún Harðardóttir skrifar Skoðun Kúnstin að vera ósammála sjálfum sér Heiða Ingimarsdóttir skrifar Skoðun Óboðlegt ástand á Landspítala – okkar sjónarhorn Hildur Jónsdóttir,Einar Freyr Ingason,Þórir Bergsson skrifar Skoðun Geislameðferð sem lífsbjörg Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Þetta eru ekki eðlileg vinnubrögð Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Stöðvum helvíti á jörðu Birna Þórarinsdóttir,Bjarni Gíslason,Gísli Rafn Ólafsson,Sigríður Schram,Stella Samúelsdóttir,Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Hversu mikið er nóg? Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar Skoðun Til þeirra sem fagna Sigurður Gísli Bond Snorrason skrifar Skoðun Að semja er ekki veikleiki – það er forsenda lýðræðis Elliði Vignisson skrifar Skoðun Tekist á um hvort lýðræðið á Íslandi sé virkt eða hvort hefðaréttur sé á völdum Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Sumar og sól – en ekki alltaf sátt í sálinni Ellen Calmon skrifar Skoðun Að flokka hver vinnur og hver tapar Tryggvi Rúnar Brynjarsson skrifar Skoðun Hagur hluthafanna alltaf og undantekningarlaust í forgangi Jón Kaldal skrifar Skoðun Má berja blaðamenn? Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar Skoðun Nýr rektor og 2025 – tímamót í háskólamálum Ástráður Eysteinsson,Magnús Karl Magnússon,Margrét Helga Ögmundsdóttir,Tinna Laufey Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Vonir um vopnahlé eins og hálmstrá Sveinn Rúnar Hauksson skrifar Skoðun Samfélagið innan samfélagsins Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Til hamingju Íslendingar með nýja Óperu Andri Björn Róbertsson skrifar Skoðun Hvers vegna hatar SFS smábáta? Svarið tengist veiðigjöldum Kjartan Páll Sveinsson skrifar Skoðun „Oft er flagð undir fögru skinni“ Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
Samkvæmt framlögðum ráðningasamningi eru mánaðarlaun bæjarstjóra Hveragerðisbæjar eftirfarandi: Dagvinnulaun 487.498 kr./mán. Föst yfirvinna 72 klst. á mánuði alla mánuði ársins sem gerir 364.536 kr./mán Laun fyrir setu í bæjarstjórn, 66 þús. kr./mán. Bifreiðarstyrkur 1.300 km akstur/mán. alla mánuði ársins gerir u.þ.b. 130.000 kr./mán. Samtals eru því laun og hlunnindi bæjarstjóra Hveragerðisbæjar skv. ráðningarsamningi u.þ.b. 1.050.000 kr./mán. Bæjarfulltrúar A-listans gera ekki athugasemdir við grunnlaun bæjarstjórans. Að greiða honum 72 klst. á mánuði í yfirvinnu eða 864 klst./ár er hins vegar með öllu óásættanlegt og móðgun við aðra starfsmenn bæjarins, sem verða að sætta sig við yfirvinnubann eða að taka út unna yfirvinnu í fríi. Af frádregnu orlofi og almennum frídögum eru u.þ.b. 222 lögbundnir vinnudagar í árinu. Það þýðir að bæjarstjórinn fær greiddar tæplega 4 klst. á dag í fasta yfirvinnu alla virka vinnudaga ársins. Bæjarfulltrúar A-listans telja eðlilegt að laun fyrir setu í bæjarstjórn séu innfalin í þessum yfirvinnugreiðslum, en svo er ekki því bæjarstjóranum eru greiddar 66 þús. kr./mán. aukalega fyrir bæjarstjórnarfundi. Sjálfstæðismenn halda því fram að það sé hagstæðara fyrir Hveragerðisbæ að greiða bæjarstjóra bifreiðastyrk í stað afnota af bifreið sem bærinn rekur. Ekki er hirt um að rökstyðja þessa fullyrðingu. Hafi bæjarstjóri full afnot af bifreið bæjarins reiknast það til hlunninda sem greiða ber tekjuskatt af. Hve mikið honum ber að greiða er háð innkaupsverði bifreiðarinnar. Kjósi bæjarstjóri t.d. að aka um á 8 mkr. jeppa mundi hann þurfa að greiða úr eigin vasa u.þ.b. 90 þús. kr./mán., en helmingi minna fyrir 4 mkr. bíl. Bærinn greiðir hins vegar rekstur og fjármagnskostnað bílsins. Aki bæjarstjóri lítið og kjósi að aka um á dýrum bíl hagnast hann því meira á því að vera á eigin bíl og fá greiddan fastan bifreiðastyrk. Þar sem bifreiðastyrkur er greiddur vegna afnota af eigin bíl í vinnutíma er eðlilegt að deila þessum 15.600 km á ári niður á lögbundna vinnudaga. Sé það gert þarf bæjarstjórinn að aka rúmlega 70 km/dag og fær greitt fyrir það u.þ.b. 7.000 kr. Aki hann á löglegum hraða eyðir hann u.þ.b. klukkustund á dag undir stýri í þágu bæjarins. Það er mikill akstur í einu landminnsta sveitarfélagi landsins. Bæjarfulltrúar A-listans telja svona samningagerð skrípaleik. Bæjarfélaginu ber einungis að greiða fyrir þá yfirvinnu sem unnin er og fyrir akstur í þágu bæjarins samkvæmt framlagðri akstursdagbók. Þetta eru þær reglur sem aðrir starfsmenn bæjarins þurfa að lúta og sjálfgefið að sama gildi um bæjarstjórann. Róbert Hlöðversson oddviti A-listans í Hveragerði.
Óvirðing við lýðræðislegar hefðir, gegn stjórnarskrá, trúnaðarbrot gagnvart kjósendum Arnar Þór Jónsson Skoðun
Óboðlegt ástand á Landspítala – okkar sjónarhorn Hildur Jónsdóttir,Einar Freyr Ingason,Þórir Bergsson Skoðun
Skoðun Menntamál íslenskra grunnskólabarna hafa verið til umfjöllunar – sem er vel. Miklu verra er tilefnið Karen Rúnarsdóttir skrifar
Skoðun Óvirðing við lýðræðislegar hefðir, gegn stjórnarskrá, trúnaðarbrot gagnvart kjósendum Arnar Þór Jónsson skrifar
Skoðun Óboðlegt ástand á Landspítala – okkar sjónarhorn Hildur Jónsdóttir,Einar Freyr Ingason,Þórir Bergsson skrifar
Skoðun Stöðvum helvíti á jörðu Birna Þórarinsdóttir,Bjarni Gíslason,Gísli Rafn Ólafsson,Sigríður Schram,Stella Samúelsdóttir,Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar
Skoðun Tekist á um hvort lýðræðið á Íslandi sé virkt eða hvort hefðaréttur sé á völdum Þórður Snær Júlíusson skrifar
Skoðun Nýr rektor og 2025 – tímamót í háskólamálum Ástráður Eysteinsson,Magnús Karl Magnússon,Margrét Helga Ögmundsdóttir,Tinna Laufey Ásgeirsdóttir skrifar
Óvirðing við lýðræðislegar hefðir, gegn stjórnarskrá, trúnaðarbrot gagnvart kjósendum Arnar Þór Jónsson Skoðun
Óboðlegt ástand á Landspítala – okkar sjónarhorn Hildur Jónsdóttir,Einar Freyr Ingason,Þórir Bergsson Skoðun