Beinn kostnaður við Kastljósið 130 milljónir 21. desember 2009 23:36 Þórhallur Gunnarsson dagskrárstjóri RÚV.
Beinn kostnaður Ríkisútvarpsins við sjónvarpsþáttinn Kastljós nemur 130 milljónum króna á ári. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í svari menntamálaráðherra við fyrirspurn Gunnars Braga Sveinssonar þingmanns um kostnað við einstaka þætti hjá RÚV. Silfur Egils kostar 14 milljónir og Kiljan 22. Í svarinu kemur fram að ráðherra hafi óskað eftir upplýsingum frá RÚV um þau atriði sem Gunnar Bragi spurði um en hann vildi fá að vita um kostnað við þættina Kastljós, Silfur Egils, Fréttaaukann, Kiljuna og Tíufréttir Sjónvarpsins. Í svarinu segir að heildarframleiðslukostnaður dagskrárdeildar samanstandi meðal annars af samnýtingu á starfsfólki, tækjum, húsnæði og öðrum búnaði sem þarf til framleiðslunnar. „Það er því tæknilega erfitt að sundurliða kostnað eða sundurgreina viðbótarkostnað sem verður til við framleiðslu einstakra þátta. Fréttamenn RÚV vinna sem dæmi að framleiðslu fjölmargra frétta og fréttatengdra þátta, jafnt í útvarpi, sjónvarpi sem á vefnum, og vinna við það á vöktum alla daga ársins. Kostnaður við tíufréttir sjónvarps er tiltölulega lítill viðbótarkostnaður. Samnýting starfsfólks gildir einnig um þá sem koma að gerð annarra innlendra þátta." Þó birtist í svarinu tafla þar sem teknar eru saman upplýsingar um beinan kostnað við gerð þáttanna sem um var spurt án ýmiss tæknikostnaðar (aðstaða og tæknibúnaður), hlutdeildar í sameiginlegum kostnaði viðkomandi deildar og hlutdeildar í sameiginlegum rekstri RÚV, svo sem húsnæðis, tækjabúnaðar, stoðdeilda og yfirstjórnar auk gjalda sem lenda á félaginu í heild. Þá kemur í ljós að Kastljósið kostar 130 milljónir á ári, Silfur Egils kostar 14 milljónir og annar þáttur í umsjá Egils Helgasonar, Kiljan, kostar 24 milljónir. Fréttaaukinn kostar 21 milljón og tíufréttir 22 milljónir. Í lok svarsins er þess getið, að ef ákvörðun verði tekin um að hætta með einn þátt geti það haft í för með sér hækkun á einingaverði á öðrum þáttum.
Mest lesið Kvikuhlaup hafið í Svartsengi Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Innlent Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni Innlent Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Innlent Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Innlent Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum Innlent „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ Innlent Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Innlent „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Innlent Fleiri fréttir Kvikuhlaup hafið í Svartsengi Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Sjá meira