Innlent

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti fjárhagsáætlun

Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði.
Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti fjárhagsáætlun fyrir árið 2009 og þriggja ára áætlun á fundi sínum sem lauk undir kvöld. Áætlunin var undirbúin í samstarfi Samfylkingarinnar og VG, en fulltrúar Sjálfstæðisflokksins kusu að taka ekki þátt í þeirri vinnu. Áætlunin var samþykkt með 8 atkvæðum en þrír sátu hjá.

Í tilkynningu frá Lúðvíki Geirssyni bæjarstjóra segir að áætlunin beri þess merki að sérstakar aðstæður séu uppi í efnahags- og atvinnumálum þjóðarinnar. Það séu aftur á móti skýr skilaboð bæjarfulltrúa Samfylkingar og Vinstri grænna að standa vörð um velferð og þjónustu við bæjarbúa og á þeim forsendum sé fjárhagsáætlunin grundvölluð.

Til að ná þessum meginmarkmiðum þrátt fyrir umtalsverða tekjuskerðingu bæjarsjóðs verði:

  • Stefnt að jákvæðri afkoma bæjarsjóðs á árinu 2009

  • Öll almenn þjónustugjöld í skólum og grunnþjónustu verði óbreytt í krónutölu.

  • Gjald fyrir kalt vatn lækkað um 15% til að koma á móts við rekstur heimila og fyrirtækja

  • Heimild til hækkunar útsvars nýtt til að mæta lækkun tekna af fasteignagjöldum.

  • Öllum nýframkvæmdum lokið að fullu eftir því sem fjármögnun verður tryggð.

  • Fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun endurskoðuð að vori í samræmi við almenna stöðu efnahagsmála.

Tekjutap 1 milljarður króna



Lúðvík segir að í forsendum fjárhagsáætlunar sé meðal annars gert ráð fyrir að tekjumissir bæjarsjóðs verði um 1 milljarður króna á árinu 2009 vegna minni atvinnuþátttöku og atvinnutekna bæjarbúa. Til að bregðast við þeirri stöðu hafi þegar verið gripið til fjölþættra aðgerða til að ná fram hagræðingu og sparnaði og þeim málum verði fylgt enn frekar eftir á nýju fjárhagsári. Meðal annars hafi bæjarstjórn samþykkt á fundi sínum að lækka laun bæjarfulltrúa og fulltrúa í nefndum og ráðum um 10%, auk þess sem samþykkt hafi verið að ná fram breytingu á launum starfsfólks með yfir 400 þúsund króna heildarlaun á mánuði. Gert sé ráð fyrir 4-10% launabreytingu.

Þá verði lögð höfuðáhersla á að verja velferðina, treysta grunnnstoðir í fjölskyldu, skóla- og æskulýðsmálum og verja störf almennra starfsmanna bæjarins. Með því verði tryggður nauðsynlegur aðgangur að þjónustu og jafnir möguleikar allra bæjarbúa til að taka virkan þátt í samfélaginu.

Lúðvík segir að fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2009 sýni skýran vilja til að standa vörð um velferð og hagsmuni íbúanna og tryggja jöfnuð og þjónustu fyrir alla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×