Lífið

Sigríður Snævarr aðstoðar atvinnulausa í kreppunni

Sigríður Snævarr vildi miðla af reynslu sinni sem sendiherra í Finnlandi og Svíþjóð þegar kreppan skall þar á. Ásamt Maríu Björk Óskarsdóttur hjálpar hún nú atvinnulausum að takast á við hversdagsleikann og atvinnuleitina.fréttablaðið/Stefán
Sigríður Snævarr vildi miðla af reynslu sinni sem sendiherra í Finnlandi og Svíþjóð þegar kreppan skall þar á. Ásamt Maríu Björk Óskarsdóttur hjálpar hún nú atvinnulausum að takast á við hversdagsleikann og atvinnuleitina.fréttablaðið/Stefán

„Við erum að halda námskeið úti um allan bæ og verðum á Hótel Sögu á morgun og flytjum þar fyrirlestur um verkefnið okkar. Félagsmálaráðherra opnar fyrirlesturinn og borgarstjórinn lýkur honum,“ segir Sigríður Snævarr, fyrrverandi sendiherra. Hún hefur ásamt Maríu Björk Óskarsdóttur stofnað fyrirtækið Nýttu kraftinn en tilgangur þess er hvatning og stuðningur við atvinnulausa í formi fræðslu, fyrirlestra og námskeiðahalds eins og það er orðað í fyrirtækjalýsingunni.

María segir hugmyndina upphaflega komna frá Sigríði. Hún hafi viljað miðla af reynslu sinni sem sendiherra í Finnlandi og Svíþjóð þegar kreppan skall þar á undir lok síðustu aldar. Sigríður hafi síðan haft samband við hana skömmu eftir að hún missti vinnuna í Landsbankanum og fengið hana til að móta með sér hugmyndafræðina sem býr að baki Nýttu kraftinn. María segir grunnhugmynd Sigríðar hafa verið þá að atvinnumissirinn hefði í raun ekkert með einstaklinginn eða hæfni hans að gera.

Ferlið sem þær María og Sigríður hafa sett saman stendur yfir í þrjá mánuði. Grundvallaratriðið er að viðkomandi gangi til hvers dags sem vinnudagur væri. Fólk eigi að nota að minnsta kosti fjóra tíma á hverjum virkum degi í eitthvað uppbyggilegt. Þetta felist ekki í því að setja í uppþvottavélina eða önnur hversdagsleg störf heldur að það fari á námskeið, sinni sjálfboðastörfum eða láti gamlan draum rætast. „Allt á þetta að miða að því að gera hvern og einn samkeppnishæfan í atvinnuleitinni,“ útskýrir María og bætir við að allir taki áhugasviðspróf til að víkka hugann og skapa ný tækifæri.

Of langt mál færi í að útskýra þetta ferli og námskeiðið í þaula. María segir þó að þær leggi mikla áherslu á tengingu við atvinnulífið. Stór þáttur í því sé að hver og einn fái svokallaðan mentor úr atvinnulífinu sem hann hittir aðra hverja viku. „Auðvitað geta fjárhagsáhyggjurnar verið miklar og við gerum ekkert lítið úr því. Aðalatriðið er hins vegar að brjótast út úr þeirri einangrun sem atvinnuleysi getur reynst mörgum.“

freyrgigja@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.