Fótbolti

Stefán kom einn við sögu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Stefán Þórðarson.
Stefán Þórðarson.
Stefán Þórðarson var eini Íslendingurinn sem kom við sögu er Vaduz tapaði, 3-1, fyrir Luzern í svissnesku úrvalsdeildinni í kvöld.

Þarna mættust tvö neðstu liðin í deildinni og því leikurinn afar mikilvægur fyrir bæði lið.

Stefán kom inn á sem varamaður á 79. mínútu. Hvorki Gunnleifur Gunnleifsson né Guðmundur Steinarsson komu við sögu.

Vaduz er í næstneðsta sæti deildarinnar með 22 stig eftir 27 leiki en er nú einu stigi á undan Luzern.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×