Lán Svía háð mati AGS Sigríður Mogensen skrifar 28. júlí 2009 18:27
Svíar ætla ekki að lána Íslendingum fyrr en stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins samþykkir endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands. Þetta kemur fram í svari sænskra stjórnvalda við fyrirspurn fréttastofu. Norðurlöndin hétu í júní að lána Íslendingum samtals tvo og hálfan milljarð bandaríkjadala. Óljósar fregnir hafa borist af því hvort lánveitingin sé háð samþykki Alþingis á Icesave samingunum eða einungis háð endurskoðun á samstarfsáætlun Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Fréttastofa sendi fyrirspurn til sendiráða Danmerkur, Svíþjóðar, Finnlands og Noregs þar sem óskað var eftir svari við þessu. Svar barst frá sendiráði Svíþjóðar í dag fyrir hönd sænska fjármálaráðuneytisins. Þar segir að Norðurlöndin séu reiðubúin að aðstoða Ísland í erfiðum aðstæðum með því að veita landinu lán og styðja þannig við samstarfsáætlun Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Samkvæmt lánasamningum Íslands og Norðurlandanna sé ætlast til að Ísland virði alþjóðlegar skulbdindingar sínar. Þar á meðal skuldbindingar vegna innistæðutrygginga. Í svarinu segir að lánið frá Svíþjóð verði einungis veitt eftir að stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur samþykkt og endurskoðun á áætlun íslenskra stjórnvalda og sjóðsins. Sjónarmið Svíþjóðar sé að samþykki sjóðsins sé háð því að Íslendingar sýni í verki vilja sinn til að virða alþjóðlegar skuldbindingar.
Mest lesið Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Innlent Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Innlent „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Innlent Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Fleiri fréttir Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur Mikil tíðindi í nýrri fylgiskönnun Maskínu Þróunin mælist áfram hæg en stöðug Annað innbrotið á skömmum tíma: Leiðinlegt að stolið sé frá litla manninum á horninu Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Flugmennirnir sviptir flugréttindum Sjá meira