Bandaríkjamenn reyna að þrýsta á Ísraelsstjórn 28. júlí 2009 05:00 Netanjahú og Gates Forsætisráðherra Ísraels ásamt varnarmálaráðherra Bandaríkjanna í Jerúsalem í gær. Mynd/AP
George Mitchell, sendifulltrúi Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum, og Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, leggja nú hart að Benjamin Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, og Ehud Barak varnarmálaráðherra um að hefja á ný samningaviðræður við Palestínumenn. Þeir Mitchell og Gates munu funda stíft með ísraelskum og palestínskum ráðamönnum í vikunni. Einnig hitta þeir ráðamenn í nágrannaríkjunum að máli. Bandaríkjamenn hafa lagt áherslu á að Ísraelar stöðvi frekari framkvæmdir á landtökusvæðum Ísraela á Vesturbakkanum og í Austur-Jerúsalem. Ísraelsstjórn segir framkvæmdirnar hins vegar lið í „náttúrulegum vexti" landtökusvæðanna. Bæði Palestínumenn og Arababandalagið hafa sagt að skilyrði þess að viðræður hefjist á ný sé að framkvæmdir á landtökusvæðunum verði stöðvaðar. Bandaríkjamenn hafa tekið undir þá kröfu. Á fundi með Shimon Peres, forseta Ísraels, sagði Mitchell að Ísraelar gætu bætt andrúmsloftið með því að takast á við erfið deilumál eins og landtökufólkið. Bæði Vesturbakkinn og Austur-Jerúsalem eru hertekin svæði, sem Ísraelar náðu á sitt vald árið 1967. Ísraelskir landtökumenn á þessum svæðum eru nú orðnir 300 þúsund talsins.
Mest lesið „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Hormússundi lokað á ný Erlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Innlent Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Erlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra Innlent Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun Innlent Fleiri fréttir Skotið hafi verið á olíuflutningaskip á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Sjá meira