Leitin að sökudólgnum 6. júní 2009 06:00 Nú þegar fjármálakreppan virðist ekki jafn ógnvænleg (í bili að minnsta kosti) og sérfræðingar þykjast vera farnir að greina „græna sprota" endurreisnarinnar, færist aukinn kraftur í leitina að sökudólgum. Fjármálakreppan færir okkur að því er virðist ótakmörkuð tækifæri til að afhjúpa svik, misgjörðir og spillingu. En það liggur ekki alveg ljóst fyrir hverja og hvað á að afhjúpa. Forystusauðirnir í bankageiranum voru upphaflega augljósasti sökudólgurinn. Þeir réðu yfir stofnunum sem rökuðu inn háum fjárhæðum á tilteknu tímabili með bjagaðri verðlagningu á áhættu og reyndu að sækja sér stuðning almennings á þeim forsendum að þeir væru of stórir til að falla. Þeir virtust hrokafullir og oflaunaðir og auðvelt að gera grýlu úr þeim. En hvað um pólitíska sviðið? Hvers vegna var ekki meira taumhald og betra eftirlit með bönkunum? Stjórnmálamenn voru ekki „keyptir" í einföldum skilningi þess orðs; þeir frekar sannfærðu sjálfa sig um að nýstárlegir fjármálagjörningar væru vísir að almennri hagsæld, skaffaði fleirum þak yfir höfuðið og auðvitað þeim sjálfum auknu fylgi í kosningum.Hið reglulega bakslagNæstum allstaðar eiga stjórnvöld erfitt uppdráttar og stjórnmálamenn undir högg að sækja. Ríkisstjórnir hafa riðað til falls í Tékklandi, Ungverjalandi, á Íslandi og Írlandi. Uppþot og verkföll hafa lamað Taíland, Frakkland og Grikkland. Ríkisstjórnin í Kúveit setti þingið af.Bretland nötrar útaf hneykslismálum, sem eiga sér ekki sinn líka frá því á 19. öld.Gagnásakanir í kjölfar efnahagshruns eiga sér langa sögu og endurtaka sig með reglulegu millibili. Mikill uppgangur í verðbréfaviðskiptum snemma á 8. áratug 19. aldar endaði með hruni árið 1873 og nornaveiðum á þeim sem báru ábyrgð.Árið 1907 var J.P. Morgan í fyrstu álitinn bjargvættur markaðarins en í næstu andrá óvinur almannahagsmuna. Á 4. áratug 20. aldar var skuldinni skellt á bankamenn og fjármálaráðherra. En það sem eftir lifði af 20. öldinni virtist sem hið reglulega bakslag í efnahagslífið væri á bak og burt.Síður ástæða til að forðast mistökNú til dags eru ásakanir ekki bundnar við stjórnmála- og fjármálasviðið. Gagnrýnendur reyna líka að koma auga á hugmyndir og hagsmuni sem stuðluðu að hinum efnahagslegu óförum. Að þessu leyti er kreppan sem nú gengur yfir ólík forverum sínum; nú virðist sem hin fjárhagslega nýjungagirni hafi verið keyrð áfram af hugmyndafræðilegum og tæknilegum nýjungum.Þar sem um fjármálakreppu er að ræða beina flestir í leit að hugmyndafræðilegum rótum hennar sjónum sínum að hagfræðingum, sem virðast, með nokkrum undantekningum, sérlega rúnir trausti. Endalaust er vitnað í orð sem Robert Lucas, höfundur kenningarinnar um hagsýnisvæntingar, á að hafa látið falla árið 2003 í forsetaávarpi sínu á fundi Bandaríska hagfræðifélagsins (American Economy Association), á þá leið að fundist hefði hagnýt lausn á grundvallarvandanum við að fyrirbyggja fjármálakreppur.Það liggur líka ljóst fyrir að akademískir hagfræðingar höfðu áhrif á stefnumörkun. Larry Summers, núverandi forstöðumaður efnahagsráðs Obama Bandaríkjaforseta, komst að þeirri niðurstöðu þegar hann var ungur hagfræðingur að „áföll á sviði fjármála og peningastefnu hafa minni áhrif á upptök kreppu en við gerðum ráð fyrir". Ef hagkerfið var pottþétt og til voru margir góðir kostir til að takast á við kreppu og samdrátt, var síður ástæða til að forðast mistök. Það var alltaf hægt að laga hlutina eftir á.Áhrif póstmódernismansFulltrúar annarra fræðigreina hafa glott drýldnislega yfir opinberri niðurlægingu kollega sinna í hagfræði. Fræðigreinar sem styðjast ekki við stærðfræði virðast hafa náð fram hefndum, þar sem ógöngurnar sem tröllatrú á flókin táknkerfi og torræðar formúlur hefur leitt hagkerfið í koma sífellt betur í ljós.Það er hins vegar svo að straumar og stefnur í öðrum fræðigreinum, sem og út í samfélaginu, að minnsta kosti stuðluðu að fáránlegri áhættusækni, ásamt vilja til að búa til og meðtaka virðismat á fjármálagjörningum, sem voru svo flóknir að ekki nokkur leið var að skilja þá. Hið almenna samfélagsástand er stundum kennt við póstmódernisma, sem felur í sér að rökhyggju er skipt út fyrir innsæi, tilfinningu og vísanir.En sjálfur póstmódernisminn er sprottinn upp úr tækni sem hann á í margræðu sambandi við. Ólíkt gangvirkinu í gömlu gufuvélunum og fyrstu bílunum sem var auðvelt að skilja, eru nútímabílar og flugvélar orðin svo flókin að þeir sem stýra þeim hafa ekki hugmynd um hvernig tæknin sem knýr tækin áfram virkar. Internetið hefur búið til veröld þar sem skýr rökhugsun hefur vikið fyrir hliðskipun áberandi mynda.Póstmódernisminn stígur burt frá rökrænni menningu þess tíma sem kenndur var við „módernisma". Margir koma auga á sífellt fleiri hliðstæður við lífið á miðöldum, þar sem fólk hrærðist í atburðum og ferlum sem það skildi ekki. Fyrir vikið fékk það á tilfinninguna að það lifði í veröld þar sem púkar og yfirnáttúrlegar verur byggju líka.Hruninn heimur@Megin-Ol Idag 8,3p :Hið nýlega tímabil alþjóðafjármála (kannski heyrir það fortíðinni til?) var ólíkt fjármálabylgjunni fyrir einni öld. Menningarlegar birtingarmyndir þess virkuðu líka frumlegar; gáskafullar, tilvísanahlaðnar og á jaðrinum - í einu orði sagt: póstmódernískar. Á þessu tímabili var ekki litið á hefðir og fortíðina sem fjötra, heldur sem uppsprettu írónískra vísana. Á hápunkti tímabilsins sönkuðu margir stórlaxar að sér rándýrri abstrakt list. Póstmódernísk vanræksla eða andúð í garð raunveruleikans bjó til þá tilfinningu að heimurinn væri síbreytilegur og sveigjanlegur, jafnvel álíka skammgóður og merkingarsnauður og verðmæti hlutabréfa. Til varð bandalag fjármálasérfræðinga, sem töldu sig vera að selja nýjar hugmyndir, pólitískrar elítu sem studdi lágmarksregluverk, og menningarástands sem aðhylltist tilraunamennsku og hafnaði hefðbundnum gildum. Niðurstaðan varð sú að öll gildi - þar á meðal í fjármálaheiminum - voru álitin handahófskennd og í rauninni fáránleg. Það kemur ekki á óvart að þegar skilningsleysi hættir að leiða af sér hagsæld, en fer þess í stað að valda efnahagshruni og upplausn, breytist það í reiði. Leitin að sökudólgnum minnir sífellt meir á nornaveiðarnar seint á miðöldum: þetta er leið til að láta sundurlausa og fjandsamlega veröld koma heim og saman. Harold James er prófessor í sagnfræði og alþjóðamálum við Princeton-háskóla. ©Project Syndicate. (Millifyrirsagnir eru Fréttablaðsins.) Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Grunnur að bjartri framtíð í Kópavogi Sigrún Bjarnadóttir Skoðun Strætó, bílar, rafhjól og gangandi fólk Unnar Jónsson Skoðun Öll börn eiga rétt á öryggi Arna Magnea Danks Skoðun Að kjósa af yfirvegun Morgan Bresko Skoðun Umhverfið er okkar mál - Gaman að plokka í Garðabæ Guðfinna Guðmundsdóttir Skoðun Hamfarir Hildar – seinni hluti Haraldur Freyr Gíslason Skoðun Ást mín á íþróttum og silfurleysið í Peking Bjarni Fritzson Skoðun Urriðaholt svikið um almennilega sundlaug Laufey Gunnþórsdóttir Skoðun Nauðsynlegar umbætur í menntamálum Inga Sæland Skoðun Börnin aftur í aftursætið? Heiðdís Geirsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hjólakynslóð framtíðar verður til Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Grunnur að bjartri framtíð í Kópavogi Sigrún Bjarnadóttir skrifar Skoðun Strætó, bílar, rafhjól og gangandi fólk Unnar Jónsson skrifar Skoðun Að kjósa af yfirvegun Morgan Bresko skrifar Skoðun Öll börn eiga rétt á öryggi Arna Magnea Danks skrifar Skoðun Umhverfið er okkar mál - Gaman að plokka í Garðabæ Guðfinna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Samfélag fyrir sum börn - framtíðarsýn sveitarfélaga fyrir fötluð börn Harpa Júlíusdóttir skrifar Skoðun Nauðsynlegar umbætur í menntamálum Inga Sæland skrifar Skoðun Urriðaholt svikið um almennilega sundlaug Laufey Gunnþórsdóttir skrifar Skoðun Hver bað um þessa illsku við eignalausa? Guðmundur Hrafn Arngrímsson,Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum með skólasamfélaginu í Garðabæ! Harpa Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Fangelsi fyrir fjölskyldur - Ekki nota börn sem peð í pólitískri skák Alma Mjöll Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ferilsskrá í stað fagurgala Vigdís Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Börnin aftur í aftursætið? Heiðdís Geirsdóttir skrifar Skoðun Innantóm loforð um hjúkrunarheimili Gunnsteinn R. Ómarsson,Berglind Friðrikisdóttir,Pálmi Þór Ásbergsson,Bryndís Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ást mín á íþróttum og silfurleysið í Peking Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Aukið aðgengi að áfengi? Lísbet Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þegar loforð duga ekki: Leikskólakerfið í Kópavogsbæ Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Leðurblökur í ráðhúsinu Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Um kennaranám Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Reynsla Íslands á erindi við umheiminn Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Garðabær er lifandi samfélag með aðlaðandi umhverfi, menningu og mannlíf Stella Stefánsdóttir skrifar Skoðun Árleg óvissa um NPA samninga er óboðleg Rúnar Björn Herrera Þorkelsson,Þorbera Fjölnisdóttir skrifar Skoðun Frelsi felst í fleiri valkostum Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Mismunum grunnskólabarna í sumarfrístundakerfi Reykjavíkurborgar Guðrún Sif Friðriksdóttir skrifar Skoðun Viljum við að fatlað fólk mennti sig? Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Bið, endalaus bið Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Kársnesið okkar á betra skilið Thelma Árnadóttir skrifar Skoðun Er íslenskan að missa pláss í eigin landi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fleiri talmeinafræðinga og biðlistana burt Tinna Steindórsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Samfélag fyrir sum börn - framtíðarsýn sveitarfélaga fyrir fötluð börn Harpa Júlíusdóttir skrifar
Skoðun Hver bað um þessa illsku við eignalausa? Guðmundur Hrafn Arngrímsson,Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Fangelsi fyrir fjölskyldur - Ekki nota börn sem peð í pólitískri skák Alma Mjöll Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Innantóm loforð um hjúkrunarheimili Gunnsteinn R. Ómarsson,Berglind Friðrikisdóttir,Pálmi Þór Ásbergsson,Bryndís Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Garðabær er lifandi samfélag með aðlaðandi umhverfi, menningu og mannlíf Stella Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Árleg óvissa um NPA samninga er óboðleg Rúnar Björn Herrera Þorkelsson,Þorbera Fjölnisdóttir skrifar
Skoðun Mismunum grunnskólabarna í sumarfrístundakerfi Reykjavíkurborgar Guðrún Sif Friðriksdóttir skrifar